fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég kem hérna upp vegna þess að hæstv. fjármálaráðherra hélt því fram um tíma að við kynnum, held ég, vart að lesa. Ég fór nú bara að fletta í fjármálaáætlun síðasta árs og þar sem fjallað er um einstök málefnasvið þá endar hver einasti kafli á þessu: „Töflu yfir markmið og mælikvarða má skoða á vefnum fjarlog.is ásamt stefnumótun málefnasviðsins og málaflokka þess í heild.“ Þetta var svona í framhaldi af sex fjármálaáætlunum sömu ríkisstjórnar þar sem var samfella í öllu þessu. Þessu er ekki að heilsa í nýrri fjármálaáætlun enda ekki hægt að vísa í neitt. Það eru engir mælikvarðar eða töluleg markmið þannig að við höfum ekkert við fagráðherrana að ræða, því miður. Þar fyrir utan er auðvitað fjármálaáætlunin með þá vankanta að hér var ekki tekið á áskorunum um tollastríðið, um aukin útgjöld í varnarmál, (Forseti hringir.) um fleiri þætti sem skipta máli. En á sama tíma birtist samt í þessari fjármálaáætlun að varasjóðurinn er 20 milljörðum minni til að takast á (Forseti hringir.) við óvænta atburði eða næstu ára — 20 milljörðum minni samt. (Gripið fram í: Hvar fannstu þessa tölu …? )