fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Já, við áttum hér að fara að ræða, ekki þessa þingsályktunartillögu hér, sem er eldri fjármálaáætlun, heldur þetta þunna plagg hérna. Og það er samið um þessa umræðu. Fólkið þarna úti áttar sig kannski ekki á því. Þetta er ekkert hefðbundin umræða um þingsályktunartillögu. Það var búið að semja um þessa umræðu, að við fengjum að tala hér við fagráðherrana. Við höfum ekki þær sirka 200 blaðsíður sem okkur vantar til að eiga það samtal. Þannig að ég verð að fá að taka undir með hv. þm. Bergþóri Ólasyni, ég veit ekki hvað við höfum nákvæmlega hér að ræða um. En þá vil ég líka bara benda á að það hefði verið miklu eðlilegra að taka þessa umræðu bara um hefðbundna þingsályktunartillögu þar sem þingmenn hefðu getað komið og tjáð sig um það sem þá lystir undir einhvers konar umræðu um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. En það er alveg ljóst, virðulegur forseti, að vegna þess að hæstv. ráðherrar hafa hér vísað í að hluti af þessum gögnum eigi að birtast í ársskýrslum ráðherra, sem samkvæmt lögum þurfa að koma fyrir 1. júní, verður nauðsynlegt að setja það á dagskrá hér í vor að fá samtal við alla hæstv. ráðherra þar sem við getum þá átt það samtal sem við ætluðum kannski að eiga hér í dag eða í síðustu viku.