fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég veit ekki hvað skal segja um þessa umræðu hér þar sem hæstv. ráðherra segir bara að við kunnum ekki að lesa og svo fer hann bara, hann hjálpar okkur ekkert að lesa. Hann er ekki einu sinni viðstaddur þessa umræðu hér. En það er ekki nóg með að við eigum að fjalla um þetta hér bara í myrkrinu. Það er eitt dæmi þar sem er sagt hvað ferðaþjónustan er mikilvæg og þá endar kaflinn á þessu:
„Í samræmi við áherslur í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar verður tekið til skoðunar auðlindagjald fyrir aðgang ferðamanna að náttúruperlum Íslands sem og breyttar reglur um skammtímaleigu …“
Á að bæta aðbúnað ferðamanna? Á að afla gagna? Um það er ekki talað. Þetta eigum við að ræða núna í skjóli nætur. Planið til að ræða við fagráðherrana er til klukkan korter yfir tvö í nótt, síðasti ráðherrann á að hefja mál sitt hérna klukkan eitt í skjóli nætur. Því tek ég undir með hv. þingflokksformanni Miðflokksins, Bergþóri Ólasyni. Við í Sjálfstæðisflokknum teljum okkur ekki hafa neitt við fagráðherrana að ræða miðað við þessi gögn. Það getur ekki verið okkar að bara giska á um hvað við eigum að spyrja. Gögnin þurfa að liggja fyrir. Og ef hæstv. forseti vill leggja það til að þessu verði frestað þangað til frekari gögn liggja fyrir þá treystum við okkur til að koma hér og ræða þessa fjármálaáætlun en annað verður að vera mat hæstv. forseta.
(Forseti (IngÞ): Þessi áskorun er móttekin.)