fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég ætla nú bara að koma hingað upp og taka undir orð hv. þm. Bergþórs Ólafssonar. Ég held að í raun og veru að það sé bara komið að ákveðnum endapunkti í þessari umræðu. Alla vega er það mat okkar, þingflokks Framsóknarflokksins, að við komumst ekki lengra með þetta mál að svo komnu máli.
Hér erum við að ræða fjármálaáætlun. Þetta er áætlun, og okkur vantar, eins og margsinnis hefur komið fram, öll gögn til að sjá hver áætlunin raunverulega er. Ef við höfum ekki gögnin og höfum ekki upplýsingarnar til að átta okkur á áætluninni þá er ekkert hægt að ræða hana. Svo einfalt er það. Ef hæstv. forseti Alþingis vill gera bragarbót á þessu og færa umræðna fram í næstu viku og bíða eftir að þessi gögn verði komin þá skulum við taka umræðuna þar og þá. En ég held, hæstv. forseti, að við setjum punktinn hér í dag.
(Forseti (IngÞ): Mælendaskráin er ekki sammála hv. þingmanni um að umræðan sé á endapunkti. Enn eru fjórir þingmenn á mælendaskrá.)