156. löggjafarþing — 27. fundur,  7. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[16:45]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég get tekið undir það sem hefur komið fram hér áður og mig langar aðeins til að skýra, bara fyrir fólkið sem er að hlusta, hvað við eigum við. Ef við tölum t.d. um málefni lið 15 í orkumálum þá var fjallað sérstaklega um það í fyrra að það ætti að ná ákveðnum markmiðum í orkuskiptum í sjávarútvegi, 8% fyrir árið 2029. Í áætluninni í dag er hins vegar ekki kveðið á um nein slík markmið, þ.e. það er ekki sagt hvaða markmið eigi að vera leiðarljósin með úthlutun þeirra fjármuna sem verið er að fjalla um. Ef þingheimur samþykkir mælikvarðalausa fjármálaáætlun erum við einfaldlega að sýna fólkinu í landinu vanvirðingu. Þing og þjóð á rétt á því að vita hvar á að skera niður, hvar á að gefa í og síðast en ekki síst hverjir eiga að vera skýru mælikvarðarnir á árangur. Það er umfram allt réttur Alþingis að fá gagnsæ og skýr gögn frá ríkisstjórninni um áherslur næstu ára þannig að einhver skilji við hvað er átt.