156. löggjafarþing — 27. fundur,  7. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[16:47]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég nefndi í þessari umræðu í síðustu viku að hvað varðar almanna- og réttaröryggi, eða kafla 9, þá megi segja að þær séu á tæpum tveimur blaðsíðum hér í fjármálaáætlun, áherslur ríkisstjórnarinnar í þeim málaflokki. En þegar maður fer inn á vefsvæði síðasta árs þá eru þetta 20 blaðsíður. Þær liggja ekki fyrir núna heldur tæplega tvær blaðsíður. Mig langar að fá að útskýra hér aðeins og fá að tæpa á einu. Á bls. 55 í fjármálaáætlun er tekið fram að auka eigi aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu. Ekkert meira um það sagt, en það sem við vitum aftur á móti er að ríkisstjórnin núna, hin nýja og öfluga, er að loka Janusi endurhæfingu, sem er alvarleg afturför í geðendurhæfingu, sérstaklega fyrir ungt fólk. Og hún hefur engu svarað. Þau eru samt með þetta í fjármálaáætlun sem áherslumál, (Forseti hringir.) að auka geðheilbrigðisþjónustu.

Annað mál: Á síðasta ári var tekið fram að það (Forseti hringir.) ætti að tryggja að þyrluþjónusta væri möguleg innan sex klukkustunda allt árið. Við vitum það og erum búin að vita það lengi að leigusamningar (Forseti hringir.) við þyrlur Landhelgisgæslunnar eru að renna út. Hvernig ætlar ríkisstjórnin að tryggja sex klukkustunda viðbragðstíma á þyrlum? Þessu er hvergi svarað. Það er ekki hægt að taka þátt í þessari umræðu, virðulegi forseti.