fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég tek undir það sem hefur komið fram hérna í máli þingmanna núna síðustu mínúturnar að það er ógjörningur að fara í umræður við fagráðherrana, eins og til stóð, á þessum forsendum. Ég vakti athygli á því í fyrra máli mínu að það væri t.d. í þeim kafla sem ég var að vitna til, um húsnæðis- og skipulagsmál, verulegt ósamræmi í upphæðum. Þess er getið í texta að það eigi að auka stofnframlög um 7,6 milljarða kr. en í heildarútgjaldarammanum er lægri upphæð en á núgildandi fjárhagsári. Þetta er svo sannarlega gróf mynd og óljós mynd eins og hæstv. fjármálaráðherra sagði hér fyrr í dag, að hér væri verið að gefa grófu myndina. Svo eigum við að fara í efnisatriði máls og reyna að ræða þetta faglega og af einhverju viti hérna. (Forseti hringir.) Eigum við að fara að giska á hluti eins og aðrir hafa verið að taka hérna undir og ýja að, að okkur sé ætlað að giska á (Forseti hringir.) hvernig hlutirnir þróast? Það væri hægt að giska á það miðað við það sem kemur fram í þessum kafla þar sem stendur (Forseti hringir.) — forseti, ég er alveg að klára — að ráðast eigi í kerfisbreytingar til að einfalda regluverk og stjórnsýsluferla. (Forseti hringir.) Á að leggja niður stofnanir — við gætum giskað á það — upp á einhverja milljarða til að spara þá?