156. löggjafarþing — 27. fundur,  7. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[17:25]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Hæstv. forseti. Fremsta forgangsmál ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur er að stöðva hallarekstur ríkissjóðs til að ná efnahagslegum stöðugleika, lækka vexti og bæta forsendur fyrir aukinni verðmætasköpun, en þannig skapast svigrúm til löngu tímabærra fjárfestinga í innviðum landsins. Á sama tíma og lögð er áhersla á hagræðingu, forgangsröðun og betri nýtingu fjármuna í ríkisrekstri er auknum framlögum varið til heilbrigðisþjónustu, vegabóta, félagsmála og annarra brýnna verkefna í samræmi við þær áherslur sem fram koma í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, fólkinu í landinu til aukinnar velsældar og heilla.

Framlög til heilbrigðismála nema tæplega þriðjungi af heildarútgjöldum ríkissjóðs og aukast um 56,9 milljarða kr. eða 13,8% á tímabili fjármálaáætlunar. Þar af er raunvöxtur útgjalda til heilbrigðismála 22,4 milljarðar vegna fjölgunar og öldrunar þjóðar. Því eru 34,5 milljarðar til nýrra verkefna og koma til 4,9 milljarðar þegar á næsta ári.

Virðulegi forseti. Það er skýrt ákall um að bæta heilbrigðiskerfið. Íslendingar vilja búa við fyrsta flokks heilbrigðisþjónustu. Það er óumdeilt að auka framlög til heilbrigðismála en fyrst og síðast þarf að fara vel með fé, sporna við sóun og endurskoða sífellt kerfi og verklag sem fyrir er í því augnamiði að auka virði þjónustunnar. Það er sömuleiðis brýnt að bæta lýðheilsu og freista þess þannig að minnka eða seinka eftirspurn eftir heilbrigðisþjónustu, enda er bætt heilsa almennings áhrifamesta sparnaðaraðgerðin í heilbrigðiskerfinu.

Framlög til málefnasviðs 23, Sjúkrahúsþjónustu, hækka um 28,2 milljarða eða 16,2%. Þar af eru 3,2 milljarðar vegna áherslumála ríkisstjórnarinnar, m.a. geðheilbrigðisþjónustu, biðlista barna og fíknivanda. Þannig er rekstur nýrra öryggisvistunarrýma nú tryggður. DRG-pottur mun vaxa um 800 millj. kr. Unnið verður að því að bæta sjúkraskrárkerfi svo þau auki skilvirkni og minnki skrifræði með hagnýtingu tækni og nýsköpunar. Lögð verður áhersla á styrkingu sjúkrahúsþjónustu á landsbyggðinni og unnið að því að gera nám heilbrigðisstétta aðgengilegt óháð búsetu og aðstæðum, enda eykur það líkur á að fjölga heilbrigðisstarfsfólki á landsbyggðinni.

Á málefnasviði 24, Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa, aukast framlög um 6,6 milljarða eða 6,8%. Af því verður 2,3 milljörðum varið í áherslumál ríkisstjórnarinnar eins og áður var nefnt. Heilsugæslan verður leiðandi í eflingu lýðheilsu og forvarna. Sérstök áhersla verður á að efla heimahjúkrun og nýsköpun þar sem hún getur stuðlað að betri meðferð, þjónustu og nýtingu mannafla.

Á málefnasviði 25, Hjúkrunar- og endurhæfingarþjónusta, hækka framlög um 16,7 milljarða eða 19,1%. Þar vega þyngst auknar fjárveitingar vegna fjölgunar hjúkrunarrýma á tímabilinu í samræmi við áherslur ríkisstjórnarinnar um þjóðarátak í umönnun eldra fólks. Tækifæri til hagræðingar á málefnasviðinu felast í bættri lýðheilsu, að tryggja snemmtæka íhlutun með heilsueflingu, heimaþjónustu, heimahjúkrun og nægu framboði af dagdvalarrýmum.

Framlög á málefnasviði 26, Lyf og lækningavörur, hækka um 5,9 milljarða eða 13,4%. Þar af eru 1,7 milljarðar vegna áherslumála ríkisstjórnar. Mikilvægt er að ákvarðanaþátttaka vegna greiðsluþátttöku í lyfjakostnaði sé gagnsæ, byggi á hlutlægum og faglegum forsendum og að jafnræði sé tryggt. Tækifæri til að ná því markmiði liggja í innleiðingu svokallaðs heilbrigðistæknimats. Loks er heildarfjárfesting í uppbyggingu Landspítala 125 milljarðar og á Sjúkrahúsinu á Akureyri 11 milljarðar á tímabilinu.

Herra forseti. Ég hef hér farið yfir helstu drætti. Það hefði verið gaman að fá frekari tækifæri til að ræða við stjórnarandstöðuna um einstaka málaflokka.