fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Fyrsta fjármálaáætlun nýrrar ríkisstjórnar er skýr og metnaðarfull. Forgangsmál ríkisstjórnarinnar er að með styrkri hagstjórn verði ríkissjóður rekinn hallalaus árið 2027. Eftir sem áður verður svigrúm nýtt til að efla nokkrar mikilvægar stoðir samfélagsins. Undir innviðaráðuneytið heyra sveitarfélög og byggðamál, samgöngumál, fjarskiptamál og póstmál. Ráðuneytið ber ábyrgð á rúmlega 567 milljarða kr. fjárheimildum á tímabili áætlunarinnar. Heildarframlög til málefnasviðs samgangna og fjarskipta á tímabili áætlunarinnar nema tæpum 369 milljörðum kr. Framlög til samgöngumála verða aukin úr 67 milljörðum á ári í 74 milljarða á ári á tímabilinu. Þar af verða framlög til vegabóta, viðhalds og þjónustu aukin um 7 milljarða strax á árinu 2026.
Helstu áskoranir á sviði samgangna er að auka öryggi vegfarenda í umferðinni, bæta aðgengi, stytta ferðatíma milli byggða, draga úr umhverfisáhrifum og efla atvinnulíf. Við glímum við miklar áskoranir á sviði vegamála. Viðhaldsskuld hefur safnast upp um langt skeið og ástand innviða er orðið alvarlegt. Þörf er fyrir markvissar fjárfestingar til að tryggja öryggi og bæta búsetuskilyrði á landinu öllu. Undanfarin tíu ár hefur umferð á þjóðvegum aukist um 70–100% sem aftur eykur álag á slitlag, brýr og burðarlag. Um 40% þjóðvega eru metin í slæmu eða mjög slæmu ástandi og 30% vegakerfisins eru með slakt burðarlag. Gera má ráð fyrir að umferð aukist áfram á næstu árum. Samtímis hafa þungaflutningar aukist hratt samhliða þróun útflutningsgreina og stigvaxandi vöruflutningum. Þá hefur meðalþyngd nýskráðra ökutækja aukist jafnt og þétt. Við hyggjumst vinna á viðhaldsskuldinni, sem fyrr segir, með því að auka þegar í stað framlög til viðhalds á vegakerfinu.
Þjónusta á vegum, ekki síst vetrarþjónusta, er nauðsynleg til að tryggja jöfn búsetuskilyrði um land allt. Í þessari fjármálaáætlun verða framlög til þjónustu aukin til að tryggja grundvöll hennar til framtíðar. Áfram verður unnið að undirbúningi Sundabrautar en framkvæmdin verður samvinnuverkefni hins opinbera og einkaaðila, fjármögnuð með gjaldtöku. Starfshópur skoðar nú valkosti um fjármögnun Sundabrautar. Áfram er unnið að mikilvægum og ábatasömum úrbótum í samræmi við samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins til að greiða fyrir umferð á stofnvegum, efla almenningssamgöngur og styðja við fjölbreytta ferðamáta. Þannig mun þjónusta almenningssamgangna á svæðinu eflast og tíðni á lykilleiðum batna strax næsta haust. Loks fer fram vinna við að skoða stofnun innviðafélags með fjárfestum til að fjármagna framkvæmdir við stærri samgönguinnviði. Stefnt er að því að ljúka þeirri vinnu eins fljótt og kostur er, m.a. til að rjúfa kyrrstöðu í jarðgangagerð á undanförnum árum.
Virðulegi forseti. Málefnasvið fjarskipta- og netöryggismála hefur nú verið fært til innviðaráðuneytisins. Stefna ríkisstjórnarinnar er að efla fjarskiptainnviði á landsbyggðinni. Stefnt er að því að ljúka ljósleiðaravæðingu alls þéttbýlis fyrir árslok 2026 með eftirfylgni samninga við sveitarfélög um styrkta uppbyggingu. Áframhaldandi uppbygging verður á samfelldu tal- og háhraðafarnetssambandi á öllum stofnvegum á láglendi en markmiðið er að ljúka uppbyggingunni á kjörtímabilinu.
Lykilhlutverk stjórnvalda varðar þó fjarskiptaöryggi og netöryggi sem í ljósi stöðu heimsmála og tækniþróunar á borð við gervigreind er mikilvægara en nokkurn tíma áður. Lögð er áhersla á að stórefla netöryggi í samræmi við netöryggisstefnu og aðgerðaáætlun stjórnvalda. Ýmsar aðgerðir hafa þegar skilað árangri og hefur Ísland hækkað verulega í netöryggisvísi Alþjóðafjarskiptasambandsins. Fram undan er vinna við endurskoðun á skipan netöryggismála á Íslandi. Horft verður til reynslu og árangurs undanfarinna ára og nýs regluverks Evrópuríkja á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Byggt á því munu stjórnvöld láta sig varða netöryggismál alls samfélagsins.
Heildarframlög til málefnasviðs um sveitarfélög og byggðamál (Forseti hringir.) á tímabili áætlunarinnar nema 198 milljörðum kr. Við hyggjumst standa vörð um framlög til byggðamála og treysta stoðir hinna dreifðu byggða. Nýlega voru gerðir samningar (Forseti hringir.) um sóknaráætlun landshluta sem stuðlar að jákvæðri og sjálfbærri byggðaþróun og færir heimafólki aukna ábyrgð. Þó að sveitarfélögum hafi fækkað talsvert síðustu áratugi, (Forseti hringir.) úr 204 í 62, eru mörg enn fámenn. Við stefnum áfram á að halda áfram þeirri þróun að fækka sveitarfélögum. (Forseti hringir.) Mikilvægt er að efla sveitarstjórnarstigið til að jafna búsetuskilyrði og auka aðgengi að þjónustu.
Virðulegi forseti. Ég vísa að öðru leyti til greinargerðar með hverju málefni fyrir sig.