156. löggjafarþing — 27. fundur,  7. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[17:37]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Í mennta- og barnamálaráðuneytinu er unnið að verkefnum er varða heildarhagsmuni barna og ungmenna. Felur það í sér rík tækifæri til umbóta með samhæfðum aðgerðum. Ráðuneytið ætlar að stuðla að því að menntun, aðbúnaður og réttindi barna séu ávallt í fyrirrúmi. Fer ráðuneytið með stjórnarmálefni sem varða fræðslumál, málefni barna og ungmenna, íþrótta- og æskulýðsmál ásamt málefnum framhaldsfræðslu sem voru flutt í ráðuneytið nú fyrir skömmu. Ég geri hér grein fyrir megináherslum sem koma fram í fjármálaáætlun 2026–2030.

Undir ráðuneytið heyra málefnasvið 20 og 22 og hluti af málefnasviðum 18 og 29 og er heildarfjárheimildir árið 2025 áætlaðar tæpir 66 milljarðar kr. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar kemur fram að við ætlum að hefja sókn í menntamálum og bæta umhverfi nemenda og kennara. Við ætlum að leggja áherslu á íslenskukennslu, læsi og aðgengi að fjölbreyttum námsgögnum og styðja skólakerfið til að mæta flóknum áskorunum. Til að styðja við þessi markmið er m.a. í fjármálaáætlun gert ráð fyrir auknum fjárheimildum til námsgagna. Frumvarp til nýrra laga um námsgögn, sem nú liggur fyrir Alþingi og ég mun vonandi fá að mæla fyrir innan fárra daga, gerir ráð fyrir að námsgögn fyrir 18 ára og yngri verði gjaldfrjáls í áföngum á tímabili fjármálaáætlunarinnar. Þetta er aðgerð sem mun skipta miklu máli, sérstaklega fyrir efnaminni heimili með börn á framhaldsskólaaldri. Eins og sérstaklega er fjallað um í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar skipta gæði námsgagna miklu máli fyrir gæði menntunar hér á landi.

Framhaldsskólastigið er langstærsti málaflokkurinn fjárhagslega séð í ráðuneyti mennta- og barnamála. Opinberir framhaldsskólar eru 27 talsins og þar að auki eru þrír einkareknir skólar sem eru í samningssambandi við mennta- og barnamálaráðuneytið og bjóða upp á heildstætt nám á framhaldsskólastigi. Jafnframt eru allnokkrir einkaskólar sem bjóða upp á afmarkað nám á framhaldsskólastigi sem njóta opinberra fjárframlaga. Framhaldsskólakerfið hefur tekið miklum breytingum undanfarin ár. Börnum í viðkvæmri stöðu hefur fjölgað og fjölgað hefur í hópi framhaldsskólanemenda með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Ýmsar áskoranir eru fram undan varðandi stafrænt umhverfi.

Eins og áður hefur komið fram endurspeglar fjármálaáætlun hversu brýnt það er að styðja við námsgagnagerð á framhaldsskólastigi. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á snemmtækan stuðning og að tryggja inngildingu barna sem ekki hafa íslensku að móðurmáli og snemmtæka íhlutun. Jafnframt er fjallað um úrræði fyrir börn með fjölþættan vanda. Á tímabili fjármálaáætlunar er gert ráð fyrir að áfram verði unnið að innleiðingu laga um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna. Meðal markmiða með lagasetningunni er að tryggja skilvirkni og snemmtæk úrræði til að mæta þörfum barna og fjölskyldna þeirra með þverfaglegri samvinnu þeirra stofnana sem fara með málefni barna. Áhrif þessarar innleiðingar samþættrar og stigskiptrar þjónustu í þágu barna í samræmi við löggjöf um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna með áherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir og snemmtækan stuðning auka líkur á farsæld barna og velsæld fjölskyldna og samfélagslegum ávinningi til frambúðar.

Þann 19. mars sl. var samkomulag um breytta ábyrgðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga á málefnum barna með fjölþættan vanda að veruleika. Í samkomulaginu felst að eigi síðar en 1. janúar 2026 taki ríkið að sér framkvæmd og beri ábyrgð á fjármögnun sérhæfðrar þjónustu við börn með fjölþættan vanda sem búsett eru utan heimilis. Í samræmi við þetta gerir fjármálaáætlun ráð fyrir að frá árinu 2026 bætist 3 milljarðar kr. árlega við málaflokk 29.40. Það er spennandi og jafnframt krefjandi verkefni fyrir ráðuneyti barnamála að taka við þessum málaflokki. Þjónusta við börn með fjölþættan vanda hefur hingað til verið ómarkviss og brotakennd og skortur hefur verið á sérhæfðum búsetuúrræðum. En með markvissri uppbyggingu úrræða samhliða nauðsynlegri lagabreytingu má tryggja betri og öruggari þjónustu.

Fram undan er mikið verk við uppbyggingu úrræða til hagsbóta fyrir þennan viðkvæma hóp barna. Á sama tíma gerir þessi uppbygging ráð fyrir betri nýtingu fjármuna en hingað til. Sveitarfélög munu áfram bera ábyrgð á lögbundinni þjónustu og tryggð verði úrræði á fyrsta og öðru stigi við þennan hóp barna og hefur samkomulag ekki áhrif á lögbundna þjónustu þeirra.

Markmið stjórnvalda á sviði íþrótta- og frístundastarfs er að efla innviði, auka gæði og styrkja faglega umgjörð um skipulag íþrótta og frístundastarfs. Þar er unnið að ýmsum verkefnum en mig langar til að nefna sérstaklega undirbúning þjóðarleikvangs. Stefnt er að því að þjóðarhöll verði tekin í notkun síðla árs 2028. Hún mun breyta umgjörð í kringum landslið í okkar helstu íþróttagreinum ásamt því að bæta aðstöðu fyrir börn og aðra íþróttaiðkun. Í fjármálaáætlun eins og hún liggur fyrir er búið að fjármagna uppbyggingu hallarinnar og rekstur hennar.

Ég hef stiklað hér á stóru og farið yfir nokkur mál sem lúta að menntunar- og barnamálum og hafði hlakkað til að eiga samtal og andsvör við stjórnarandstæðinga. En því miður, það verður ekki núna.