156. löggjafarþing — 27. fundur,  7. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[17:43]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Dómsmálaráðuneytið ber ábyrgð á þremur málefnasviðum. Þetta eru dómstólar, almanna- og réttaröryggi og réttindi einstaklinga. Þegar ný ríkisstjórn tók við fluttust síðan mannréttindamál og jafnréttismál sem og Þjóðskrá Íslands til dómsmálaráðuneytisins en áfengismál fluttust yfir til fjármálaráðuneytisins. Á áætlunartímanum verða breytingar á málefnasviðum dómsmálaráðuneytisins, bæði á rekstrar- og fjárfestingarframlögum. Stóru breyturnar þar eru fjölgun lögreglumanna, aukin framlög til Landhelgisgæslunnar, aukin framlög til fangelsismála og lækkun kostnaðar í útlendingamálum auk viðbótarframlags fyrir nýtt öryggisfangelsi.

Þá liggur fyrir frumvarp um sameiningu sýslumannsembætta og ég vil fara nokkrum orðum um það mál. Þetta er margumtöluð aðgerð og aðgerð sem ég hef mikla trú á. Þetta er fyrsta sameiningarfrumvarp þessarar ríkisstjórnar sem fer fyrir þingið og mér finnst það skipta máli. Þetta er fyrsta frumvarp þessarar ríkisstjórnar sem miðar að því að sameina stofnanir; að níu sýslumannsembætti verði að einu. Þetta er hagræðingaraðgerð sem mun skila um 150–200 millj. kr. í ríkiskassann árlega; fjármunum sem verður varið í að efla embættið enn frekar með það að leiðarljósi að fjölga störfum á landsbyggðinni og hámarka nýtingu fjárveitinga til sýslumanns. Nú er frumvarpið komið í gegnum 1. umræðu hér á þinginu. Það verður áhugavert að fylgjast með því hvernig umræðan verður hér í 2. umræðu af hálfu þeirra flokka sem gjarnan kenna sig við ábyrg ríkisfjármál en eru nú þegar til kastanna kemur yfirleitt ekki miklir verkmenn þegar kemur að ábyrgum ríkisfjármálum.

Virðulegi forseti. Meginstef þessarar fjármálaáætlunar er öryggi og innviðir. Öryggi og innviðir eru lykilhugtök í dómsmálaráðuneytinu. Brýnt er að tryggja öryggi almennings með öflugri löggæslu og sporna gegn skipulagðri brotastarfsemi. Á tímabili áætlunarinnar er gert ráð fyrir því að fjölga lögreglumönnum og nýtt fjármagn til lögreglu kemur inn í áföngum á áætlunartímabilinu. Við erum nú að fjölga lögreglumönnum um 50 í kringum landið allt og tilkynning um það hvernig þessum lögreglumönnum verður skipt um landið allt liggur fyrir í vikunni. Lögregluyfirvöld verða að vera í stakk búin til að mæta þeim áskorunum sem leiða af skipulagðri brotastarfsemi, netbrotum, auknum vopnaburði, auk þess að sinna hefðbundinni útkallsþjónustu, umferðareftirliti og rannsóknum sakamála.

Frú forseti. Fullnustukerfið. Fangelsin okkar standa frammi fyrir miklum áskorunum. Boðunarlistar hafa lengst og af þeim sökum hafa refsingar fyrnst. Hér verðum við að fara að horfa á lausnir og það er markmið þessarar ríkisstjórnar að gera betur í þessum málaflokki. Framkvæmdir standa fyrir dyrum vegna byggingu nýs öryggisfangelsis. Sú bygging mun með tímanum leysa af hólmi fangelsið á Litla-Hrauni. Á áætlunartímanum er gert ráð fyrir að nokkrum milljónum verði varið til viðbótar því fjármagni sem þegar er áætlað að verja til framkvæmdanna. Samtals liggja þarna fyrir um 18 milljarðar kr. Ég get ekki leynt þeirri skoðun minni að fyrirætlanir um byggingu upp á einhverja 25 milljarða — ég á í erfiðleikum með að bygging þurfi að kosta svo mikið og mér finnst það ákveðinn spegill á þá óráðsíu sem hefur verið í ríkisfjármálum á vakt fyrri ríkisstjórnar.

Öryggi felst ekki bara í fleiri lögreglumönnum og skilvirkara réttarkerfi. Landhelgisgæslan gegnir miklu hlutverki og undanfarin ár hefur rekstur hennar mætt miklum áskorunum. Þessi ríkisstjórn ætlar að efla Gæsluna svo að hún standi undir því mikilvæga hlutverki sem hún á að sinna. Þetta mikilvægi eykst frekar en hitt því staða alþjóðamála er að breytast dag frá degi og Landhelgisgæslan fer með lögregluvald á íslensku hafsvæði og sinnir þar öryggisgæslu og björgun og landamæraeftirliti.

Mig langar stuttlega að nefna hér í lokin málefni útlendinga en áherslan hjá okkur er að draga úr séríslenskum reglum. Fyrsta frumvarp mitt þar um hefur verið lagt fram og mun fela í sér verulegan sparnað í kerfinu. Á móti kemur að við ætlum að búa betur að því fólki sem fær alþjóðlega vernd og tryggja það að fólk sem hingað kemur til lands og fær vernd fái raunveruleg tækifæri til að spjara sig vel í íslensku samfélagi.

Þetta eru helstu atriðin sem varða dómsmálaráðuneytið í fjármálaáætlun. Mér þykir miður að stjórnarandstaðan sjái sér ekki fært að taka þátt í þessari umræðu.