fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Forseti. Meginstefið í stefnumörkun málefnasviða ráðuneytisins er sjálfbærari og heilnæmari matvælaframleiðsla, samkeppnishæfari og sjálfbærari auðlindanýting, ásamt skilvirku markaðseftirliti. Gert er ráð fyrir að útgjaldarammi málefnasviðs ráðuneytisins verði 40,7 milljarðar á fyrsta ári áætlunarinnar og hækki um rúmar 400 milljónir frá gildandi fjárlögum. Á síðasta ári áætlunarinnar verður fjárheimild málefnasviðsins um 39 milljarðar kr. Grunnatvinnuvegir okkar þurfa trausta innviði til að standa undir aukinni verðmætasköpun. Í ljósi þess verða hafrannsóknir efldar ásamt eftirliti með fiskveiðiauðlindinni og gert er ráð fyrir 350 millj. kr. hækkun á árinu 2026. Sjókvíaeldi hefur vaxið hratt og um leið tekjur þjóðarbúsins. Gæta verður vel að umhverfi greinarinnar og frumvarp um lagareldi verður lagt fram á haustþingi og er stór liður í því. Framlög í fiskeldissjóð verða aukin til að stuðla að enn frekari uppbyggingu innviða og að efla þar með þau samfélög þar sem fiskeldi er stundað. Tekjur ríkissjóðs munu aukast vegna breytinga á lögum um veiðigjald þegar aflaverðmæti í reiknistofni veiðigjalds verður leiðrétt. Frumvarp þess efnis verður brátt lagt fyrir þingið.
Forseti. Gert er ráð fyrir 100 millj. kr. hækkun á árinu 2027 til að stuðla að aukinni innlendri framleiðslu á korni til fóðurs og til manneldis. Framlag til verkefnisins verður komið í 478 milljónir frá og með árinu 2020. Verkefnið gerir ráð fyrir áframhaldandi kornkynbótum sem eru lykilatriði til að efla kornrækt á Íslandi ásamt því að gert er ráð fyrir að styðja við þróunarverkefni í kornrækt og efla kennslu og leiðbeiningar. Rétt er að nefna að búvörusamningar renna út í lok árs 2026 og er samtal hafið um stefnumótun og nýtt stuðningskerfi. Fjárhæðir sem birtast í fjármálaáætlun taka mið af núverandi kerfi og vera kann að þær fjárhæðir taki breytingum þegar útfærsla ný stuðningskerfis liggur fyrir.
Forseti. Fjölbreytt og öflugt atvinnulíf þarf heilbrigða samkeppni. Í fjármálaáætlun þessari er gert ráð fyrir 200 millj. kr. hækkun í upphafi áætlunar, 2026 og 2027, til að styrkja samkeppniseftirlit. Framlagið lækkar svo í 100 milljónir frá og með árinu 2028. Þetta er mikið fagnaðarefni og loksins verður aukið fjármagn til samkeppnis- og neytendamála en hvorugur þessara málaflokka hefur verið fjármagnaður sem skyldi undanfarin ár. Ríkisendurskoðun benti á það í skýrslu árið 2022 að æskilegt væri að styrkja ýmsa þætti til að standa undir öflugu eftirliti. Í hagræðingartillögu ríkisstjórnarinnar er lagt til að sameina stofnanir. Sameining eða samrekstur Samkeppniseftirlits og Neytendastofu er til skoðunar með það að markmiði að efla og styrkja þessar stofnanir og þá málaflokka sem undir þær heyra.
Forseti. Útgjaldarammi málefnasviðs ferðamála hækkar um 130 milljónir frá fjárlögum 2025 til ársins 2030. Lækkun er vegna almennrar og sértækrar aðhaldskröfu, uppfærslu á tekjuáætlun ríkisaðila og niðurfellingu á tímabundnu framlagi. Áfram verður unnið með þær aðgerðir sem finna má í ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til 2030. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar er kveðið á um að ríkisstjórnin hyggist taka upp auðlindagjald fyrir aðgang ferðamanna að náttúruperlum Íslands. Unnið er að útfærslu slíkrar gjaldtöku og stefnt að því að kynna þau áform fyrir sumarið og leggja frumvarp þess efnis fram á haustþingi 2025.
Forseti. Ég hef nú stiklað á stóru um málefnasvið atvinnuvegaráðuneytisins.