156. löggjafarþing — 27. fundur,  7. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[17:58]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Ég tala hér sem staðgengill utanríkisráðherra. Í hennar fjarveru fæ ég að gera í stuttu máli grein fyrir fjármálaáætlun um þau málefnasvið sem heyra undir utanríkisráðherra og utanríkisráðuneytið. Þetta eru vitaskuld utanríkismál og alþjóðleg þróunarsamvinna, gríðarlega mikilvægir málaflokkar og hér hefði verið gott ef samtal hefði getað átt sér stað í þingsal. Það er miður að stjórnarandstaðan taki ekki þátt í umræðu um fjármálaáætlun.

Utanríkismálin hafa verið umfangsmikil hér á Alþingi undanfarið og ég þarf vitaskuld ekki að hafa mörg orð um mikilvægi hagsmunagæslu utanríkisþjónustunnar, hvort sem við erum að horfa til varnar- og öryggismála eða viðskiptahagsmuna. Í öryggis- og varnarmálum leggur Ísland ríka áherslu á það að vera trúverðugur bandamaður, m.a. með því að hafa á Íslandi kerfi, þekkingu og aðstöðu til að eiga í virku samstarfi við bandalagsríki okkar en líka með því að leggja af mörkum til varna, m.a. með eftirliti með mikilvægum innviðum. Þær stofnanir sem heyra undir dómsmálaráðuneytið hafa þar mikilvægt hlutverk. Það er auðvitað gaman fyrir dómsmálaráðherra að flytja þessi orð utanríkisráðherra þar um.

Allt netverk utanríkisþjónustunnar er virkjað í hagsmunagæslu fyrir Ísland eins og sést vel núna þegar er verið að vinna að því að lágmarka þá tolla sem eru lagðir á íslenskar vörur og þjónustu í tollastríði viðskiptaveldanna sem því miður er orðið að staðreynd. Í þessu tollastríði sem er skollið á er hagsmunagæsla á þessu sviði, sem alltaf reynist best í virku samstarfi við atvinnulífið í landinu, gríðarlega mikilvæg. Á sama tíma þarf að virkja tækifæri til að sækja fram. Nýlega var birt skýrsla sem sýnir að EES-samningurinn og ýmsir fríverslunarsamningar sem Ísland hefur gert í félagi við samstarfsríki okkar innan EFTA skila samfélaginu a.m.k. 33 milljörðum kr. árlega vegna betri aðgangs að erlendum mörkuðum fyrir utan ýmis önnur jákvæð áhrif.

Á sama tíma og við hugum að öryggis- og varnarmálum og viðskiptamálum er mikilvægt að standa með þeim gildum sem eru grundvöllur að utanríkisstefnu okkar; mannréttindum, lýðræði og virðingu fyrir alþjóðalögum. Það er skemmtilegt og merkilegt að finna það á alþjóðlegum vettvangi að rödd Íslands í mannréttindamálum er sérstaklega sterk og hún er mikilvæg núna. Það er eftir henni tekið og hið sama á við um framlög okkar til þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoðar núna þegar sótt er að grundvallarréttindum víða um heim.

Þessi áhersluatriði endurspeglast vel í fjármálaáætlun fyrir utanríkisráðuneytið. Gert er ráð fyrir því að framlög til málefnasviðs 4, Utanríkisþjónustu, aukist á tímabili áætlunarinnar úr 19,2 milljörðum í 21,9 milljarða árið 2030. Þetta er hækkun um 14%. Undir þessum lið er gert ráð fyrir auknum framlögum vegna breyttrar stöðu öryggis- og varnarskuldbindinga Íslands. Framlög til varnarmála verða þannig aukin um 3 milljarða strax á næsta ári og síðan um milljarð til viðbótar árið 2027. Drjúgum hluta þessarar aukningar, eða liðlega 2 milljörðum, verður varið til stuðnings við Úkraínu og hækkar stuðningur úr 1,5 milljörðum í 3,6 milljarða. Framlag til stuðnings Úkraínu er einnig þýðingarmikið framlag til öryggis og varna Íslands og framgangs þeirra gilda sem við byggjum á, þar á meðal virðingu fyrir fullveldi þjóða. Þá er gert ráð fyrir að framlög til annarra varnartengdra verkefna aukist um liðlega 1,2 milljarða á næsta ári og um milljarð á árinu 2027. Ef horft er til alls tímabilsins er gert ráð fyrir að framlög til málaflokksins aukist um 2,9 milljarða eða 42%. Í fjármálaáætlun er gert ráð fyrir að hluti stuðnings við Úkraínu, 1,5 milljarðar, færist milli málefnasviða, frá vörnum til uppbyggingar, árið 2028, að því gefnu að aðstæður leyfi. Aðrar hækkanir sem gert er ráð fyrir vegna verkefna sem falla undir málefnasviðið eru þær helstar að gert er ráð fyrir að samningsbundin framlög vegna fjölþjóðasamstarfs hækki um 500 millj. kr. sem endurspeglar að framlög til reksturs stofnana hafa aukist í takt við hagvöxt. Áætlað er að aðhaldsaðgerðir muni á tímabilinu skila hagræðingu í rekstri sem nemur um 1,2 milljörðum á ársgrundvelli eða 6% af rekstri. Í samræmi við fyrri ákvarðanir Alþingis um þróunarsamvinnu er gert ráð fyrir að framlög til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu hækki um úr 15 milljörðum kr. árið 2025 í rúmlega 23,5 milljarða árið 2030. Þetta er 57% hækkun. Við lok áætlunarinnar er gert ráð fyrir að opinber þróunaraðstoð nemi 0,39% af vergum þjóðartekjum samanborið við 0,34% árið 2024.

Forseti. Innrás Rússlands í Úkraínu og önnur hörmuleg átök, til að mynda þau sem við sjáum fyrir botni Miðjarðarhafs, sýna að við þurfum sífellt að hlúa að alþjóðlegu samstarfi, standa vörð um hagsmuni Íslands og leggja okkar af mörkum til verkefna sem stuðla að friði og stöðugleika.