Störf þingsins.
Frú forseti. Við vitum að það er mjög oft hægt að túlka niðurstöður skoðanakannana út og suður en stundum eru niðurstöðurnar svo afdráttarlausar að svigrúmið til túlkana er nánast ekkert. Í nýrri könnun Maskínu kemur fram að 94% landsmanna telja að útgerðirnar geti greitt hærri veiðigjöld. Það er óhætt að segja að þetta sé afdráttarlaus niðurstaða. Þetta eru ekki dauf skilaboð. Krafan er skýr og hún er hávær. Hún er einbeitt, hún er um réttlæti og sanngirni. Þessar niðurstöður eru ekki kallaðar fram í einhverju tómarúmi. Um þetta hefur verið deilt í samfélaginu í áraraðir. Það hefur ekkert skort á hrakspárnar þegar þessi mál hafa verið rædd eða einhverjar breytingar boðaðar. Það hefur verið rætt um yfirvofandi fjöldagjaldþrot. Það hefur verið talað um miklar afleiðingar fyrir starfsfólk og byggðarlög. Það hefur verið talað um að fyrirtæki rétt skrimti þegar breytingar verði gerðar, að þau stórlaskist og þau verði ekki samkeppnisfær og verði undir í alþjóðlegri samkeppni. En hefur eitthvað af þessu ræst? Hafa fyrirtækin rétt verið að skrimta og orðið undir í alþjóðlegri samkeppni? Ekki að mati þeirra sem best til þekkja. Sjávarútvegurinn á Íslandi stendur sterkar en annars staðar í heiminum. Sá yfirgnæfandi meiri hluti sem styður breytingarnar sér og skilur að það er ekkert hættulegt að gerast sem kallar á það að við verðum undir í alþjóðlegri samkeppni. Það eru engar afkomutölur sem styðja það. Það eru engar afkomutölur sem styðja það að fjöldagjaldþrot séu yfirvofandi. Það er sanngjarnt og eðlilegt að þeir sem njóta góðs af sameiginlegum auðlindum okkar greiði sanngjarnt og réttlátt gjald til samfélagsins. Þannig tryggjum við að arðurinn af auðlindunum nýtist til uppbyggingar samfélagsins; til menntunar, til heilbrigðiskerfisins, til vegabóta og hinna ýmsu innviða og þeir hafa grotnað niður í eina samfellda innviðaskuld og það er á ábyrgð þeirra sem núna helst mótmæla hærri veiðigjöldum. Við í þessum sal eigum ekki að standa vörð um sérhagsmuni heldur um almannahagsmuni. (Forseti hringir.) Þegar yfirgnæfandi meiri hluti þjóðarinnar, 94%, segist vilja breytingar þá eigum við ekki að hika. (Forseti hringir.) Þá eigum við að hlusta og þá eigum við að breyta.