156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

Störf þingsins.

[13:35]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Við gátum ekki rætt fjármálaáætlun í þaula í gær vegna skorts á gögnum, en stóra mynd fjármálaáætlunar er þessi: Efnahagsástand síðustu ára var ekki verra en svo að það komu 50 milljarðar aukalega til nýrrar ríkisstjórnar sem hefði getað gert það að verkum að menn gætu flýtt afkomunni, þ.e. hagnaði ríkissjóðs, um eitt ár og jafnvel hefði hún átt að gera betur eða þá að standa betur að ýmsum málum eins og til að mynda að fara ekki í niðurskurð í nokkrum af meginmálefnum þessara ríkisstjórnarflokka eins og geðheilbrigðismálum, sem er yfirvofandi, hvað þá menntamálum, sérstaklega er framhaldsskólinn skilinn eftir svona dálítið úti á þekju sem er eins og skilaboð um að fresta framtíðinni. Það er heldur ekki tekið á því tollastríði sem er yfirvofandi og þeim afleiðingum sem það hefur á allt. 400 milljarðar eru horfnir út úr Kauphöllinni á Íslandi, sem er meira en í upphafi Covid, eða auknum fjárútlátum vegna varnar- og öryggismála. En á sama tíma setur ríkisstjórnin um 20 milljörðum minna á hverju einasta ári í varasjóð til að takast á við óvænt atvik, 20 milljörðum minna heldur en var í síðustu fjármálaáætlun. Þetta er kannski stóra myndin.

Hvernig á að ná í yfir 6.000 milljarða í landsframleiðslu í lok tímabilsins, 2030, með þeirri stefnu sem ríkisstjórnin er með? Ég held að það sé margt sem bendir til þess að fjármálaáætlunin sé fúsk og fjármálastefnan sem hér var kynnt í síðustu viku sé brostin. Það vantar allar áherslur um verðmætasköpun.

Við í Framsókn höfum verið að leggja áherslu á mál er varða almannahagsmuni, m.a. um að skapa verðmæti fyrir framtíðina. Í dag eða á morgun mun ég leggja fram þingsályktunartillögu, og við Framsóknarmenn, um að tryggja að eignarhald í fiskeldi, sjókvíaeldi við Ísland, verði fært með sambærilegum hætti og við þekkjum í Færeyjum, til Íslands, þ.e. eignarhaldið lúti sömu lögmálum og við höfum í sjávarútvegi vegna þess að þetta er eignarhald á auðlind okkar Íslendinga. (Forseti hringir.) Það er til þess að skapa verðmæti, auka verðmætasköpun til þess m.a. að ná 6.500 milljörðum í landsframleiðslu árið 2030.