156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

Störf þingsins.

[13:40]
Horfa

Marta Wieczorek (Flf):

Virðulegur forseti. Mér er mikill heiður að tala hér í dag sem íslenskur ríkisborgari af erlendum uppruna. Við vitum að íslenskt samfélag er að breytast hratt og við stöndum frammi fyrir áskorunum sem ekki er lengur hægt að líta fram hjá. Menntakerfið þarf að aðlaga. Stór hluti nemenda talar ekki íslensku og vantar stuðning kennara, sálfræðinga og sérfræðinga. Við höfum þessa sérfræðinga hér á Íslandi en of margir þeirra fá ekki tækifæri þar sem þeir tala ekki íslensku. Sama gildir um vinnumarkaðinn; margir vilja læra íslensku en hafa hvorki tíma né fjármagn. Hvar mun samfélagið enda ef fólki verður skipt í hópa sem skilja illa hver annan? Við verðum að fjárfesta í menntun og inngildingu barna en einnig foreldra þeirra. Stuðningur við íslenskunám í skólanum er ekki aðeins nauðsyn heldur einnig skylda. Gjaldfrjálst íslenskunám á vinnutíma er ekki kostnaður þegar til lengri tíma er litið fyrir ríkið heldur fjárfesting í betri starfsmönnum og upplýstari einstaklingum í samfélaginu í heild. Það sama gildir um menningarmiðlun og faglega túlkaþjónustu. Þetta eru lausnir sem bæta stöðu allra samfélagshópa. Það skiptir ekki máli hvaðan við komum og hvort við tölum með hreim eða ekki, það sem sameinar okkur er ástin á þessu landi og væntingar okkar sem hér búa til framtíðarinnar. Börnin okkar alast upp hér saman og munu móta Ísland til framtíðar. Það er á okkar ábyrgð að tryggja þeim bestu mögulegu skilyrði. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)