156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

Störf þingsins.

[13:42]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (M):

Virðulegi forseti. Hér á Alþingi er sem fyrr að finna mikinn og dýrmætan mannauð, fólk með menntun, reynslu og hugmyndaflug til að miðla, efla samfélagið og bæta, en sú menning sem hér hefur fengið að þróast gerir, að ellefu ráðherrum frátöldum, um helming sitjandi þingmanna að lítt virkum erindisleysingjum í heil fjögur ár, fólki sem getur í besta falli fengið að tjá sig með nokkrum orðum í nefndum eða umræðum en fær í raun litlu sem engu breytt. Leggur fram vel unnin frumvörp og mál sem ættu fullt erindi við almenning, nýjar leiðir til bóta, mál sem flest eru andvana fædd, komast ekki einu sinni til umræðu í nefndum og eru þar með andvana fædd sem veldur auðvitað viðkomandi þingmönnum streitu, vonbrigðum og vanlíðan sem síðan leiðir til mótþróa í stað jákvæðni og samvinnu um hámörkun afraksturs og árangurs. Stundum, en sjaldan, hefur brugðið svo við að minnihlutaflokkur nái fram tilteknu máli. Ég minni á umsjónarmann aldraðra sem Flokkur fólksins fékk samþykktan við þinglok vorið 2021. Félagsmálaráðherrann sem við því tók að hausti ákvað að hafa að engu þá samþykkt sitjandi þingmanna allra vorinu áður. Við munum hvernig fór fyrir þeim ráðherra.

Við stefnum nefnilega öll að því sama, betra Íslandi, betri kjörum, öruggara samfélagi og svo mætti lengi telja. Væri ekki ráð, kæru vinir, að sammælast um það þegar á komandi haustþingi að bæta starfsandann, gefa minni hlutanum a.m.k. 1–2 mál hverjum sem taka mætti til vinnslu í nefndum og til afgreiðslu á þingi og tryggja þannig meiri skilvirkni, betri nýtingu mannauðs og betri anda á vinnustað?

Ég vil nefna örstutt dæmi um óvænt en skapandi innlegg óbreytts þingmanns sem nýverið reyndist til mikillar gæfu. Við munum öll eftir því sem tók við af Grágás á sínum tíma en það var Jónsbók. Við styðjumst að hluta enn í dag við þá bók. (Forseti hringir.) Ég ætla ekki að fara nánar út í þá sálma. Ég vil bara að nefna það hvernig hv. þm. Jón Gnarr var áminntur um að nankins-buxur væru ekki við hæfi hér í þinginu. Hann gerði það að máli og bauð síðan þessa Jónsbrók upp (Forseti hringir.) fyrir heila milljón króna í nýafstaðinni söfnun fyrir Kvennaathvarfinu. Þetta er dæmi um skapandi hugsun þingmanna sem er til eftirbreytni og skemmtunar. Tökum það til fyrirmyndar.