156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

Störf þingsins.

[13:45]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf):

Herra forseti. Mig langar að beina sjónum okkar þingmanna á heimaslóðir Palestínumanna. Þar er framið þjóðarmorð í beinni útsendingu á hverjum einasta degi í hverri einustu viku í hverjum einasta mánuði, ár eftir ár, þjóðernishreinsanir, einkum og sér í lagi gagnvart börnum, fyrst og fremst gagnvart börnum og mæðrum, sjúkum, fötluðum. Fyrir liggur að 70% fallinna af þeim rúmlega 50.000 sem drepin hafa verið eru börn og konur. Byssum Ísraela er fyrst og fremst beint að börnum. Og hverjum öðrum? Nýjasta tískan er tveir fyrir einn á Vesturbakkanum, sem hefur gleymst. Þar ganga menn um í bolum sem merktir eru tveir fyrir einn vegna þess að þeir drepa ófrískar arabískar konur. Það er nýjasta tískan, til að bíta höfuðið af skömminni. Aldrei hafa fleiri blaðamenn verið drepnir í löndum Palestínumanna, aldrei fleiri læknar, aldrei fleira hjúkrunarfólk, að ógleymdum sjúkraflutningamönnum sem Ísraelsher laug til á dögunum hver örlög urðu. 15 starfsmenn Rauða hálfmánans voru drepnir af löngun, af löngun til að drepa saklaust fólk sem var að bjarga öðru fólki. Hversu lágt geta menn lagst í heimi hér? Þetta minnir á það versta sem var við lýði um miðja síðustu öld og er þá langt til jafnað.

Við verðum að fordæma þetta í orði og verki alls staðar sem við erum vegna þess að við erum í liði með fólki. Við erum í liði með börnum sem hafa ekki komist í skóla í hálft annað ár og þau sem eru ekki dáin, það er búið að eyðileggja líf þeirra fyrir lífstíð vegna átakakvíða og hernaðarkvíða. Þetta er staðan fyrir botni Miðjarðarhafs og við þingmenn hljótum að fordæma þetta. Samfylkingin fordæmir þetta. Stjórnvöld hafa fordæmt þetta og ég sem sat á þingi árin 2009–2013 og tók þátt í að samþykkja Palestínu sem sjálfstætt ríki. Við eigum að virða þá ákvörðun og halda með fólki sem er í neyð. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)