Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Um helgina fór ég heim á Austurlandið. Það var virkilega góð ferð. Ég fór á Tæknidag fjölskyldunnar í Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupstað á laugardaginn. Það var skemmtilegur dagur að vanda en þessi dagur var þarna haldinn í tíunda sinn. Nemendur og starfsfólk skólans tóku á móti fólki og buðu upp á kynningar á námi og starfsemi skólans ásamt því að ýmis fyrirtæki og stofnanir kynntu sína starfsemi, sem var bæði fræðandi og hvetjandi fyrir gesti. Dagurinn er tileinkaður tækni, vísindum og nýsköpun og þróun á Austurlandi. Það komu gríðarlega margir gestir, eða um 1.000 manns, og það var gaman að vera á svæðinu og hitta svona marga.
Þessa daga fyrir austan þótti mér sérstaklega ánægjulegt að finna jákvæð viðhorf gagnvart ríkisstjórninni og verkum hennar, m.a. varðandi boðaða leiðréttingu á veiðigjöldum. Nýleg skoðanakönnun sýnir að upplifun mín af viðhorfum Austfirðinga er engin tilviljun. Tæp 63% svarenda voru hlynnt því frumvarpi sem hæstv. atvinnuvegaráðherra hefur kynnt til samráðs, en einungis rúm 20% voru því andvíg. Einnig var spurt í könnun Maskínu hvort landsmenn teldu útgerðarfélög geta borgað hærri veiðigjöld. Um það eru nær allir Íslendingar sammála, en einungis um 6% þeirra sem svöruðu könnuninni töldu að útgerðin væri ófær um það. 94% sögðu að útgerðin gæti greitt hærri veiðigjöld. 45% sögðu hins vegar að útgerðarfélög gætu greitt miklu hærri veiðigjöld. Ljóst er að útgerðir eru misjafnar að stærð og hafa mismikla getu til að greiða meira til samfélagsins. Af þeim sökum er mikilvægt að ítreka hér að til stendur að útfæra frítekjumarkið með þeim hætti að smærri útgerðir finni minna fyrir þeirri leiðréttingu á veiðigjöldum sem boðuð hefur verið.