Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég ætla að ræða aðeins um mat á gæði skólastarfs. Ef meta á gæði skóla þannig að vel eigi að vera þarf að taka tillit til margra þátta. Í fyrsta lagi þarf matið að verið unnið á vettvangi skóla með samtölum við nemendur, starfsfólk og stjórnendur. Í öðru lagi þarf að skoða samvinnu allra aðila sem koma að námi barnanna og hvernig samvinnu þeirra við nemendur er háttað. Í þriðja lagi er mikilvægt að fylgjast með kennslu og samskiptum í kennslustofunni, þá á milli nemenda innbyrðis annars vegar og kennara og nemenda hins vegar. Í fjórða lagi þarf að skoða og meta faglegar áherslur í viðkomandi stofnun. Að leggja fyrir eitt próf og ætla að leggja einhvern dóm út frá niðurstöðum þess um gæði skólastarfs er afar varhugavert og ónákvæmt svo ekki sé talað um hversu ófaglegt það er, virðulegi forseti. Samræmd próf eins og þau voru lögð fyrir þar sem allir tóku próf á sama degi og á sama tíma er séríslenskt fyrirbæri. PISA-prófin, sem nú eru nýlega yfirstaðin, eru lögð fyrir á ákveðnu tímabili án þess að nokkur óttist að það skekki niðurstöður þeirra. Þá benda sérfræðingar sem skoðað hafa samræmd próf á það að þau gefi mjög afmarkaða og yfirborðskennda mynd af þekkingu og færni nemenda. Við þurfum samræmt námsmat en við þurfum að vera meðvituð um það að þegar við lesum í niðurstöður þeirra eða þegar við tölum um samræmd próf sem mats- eða mælitæki að þau eru fyrst og fremst að prófa yfirborðsþekkingu nemenda sem að einhverju leyti er háð dagsformi nemandans. Þau eru ekki og verða aldrei áreiðanlegt matstæki um gæði skólastarfs.