156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

Störf þingsins.

[13:54]
Horfa

Valdimar Breiðfjörð Birgisson (V):

Virðulegi forseti. Því miður sýna mælingar að kvíði og þunglyndi barna er vaxandi vandamál hér á landi. Fleiri börnum líður ekki vel og ofbeldi og vímuefnaneysla fer vaxandi með skelfilegum afleiðingum. Við sem samfélag þurfum að taka höndum saman og sporna gegn þessari óheillaþróun. Nú berast fréttir um innflutning á hryllilegu vímuefni, nitazene, sem getur reynst banvænt í örsmáum skömmtum. Lögreglan hefur áhyggjur af því að þetta efni sé þegar komið til landsins. Áríðandi er að gripið verði strax til aðgerða til að koma í veg fyrir dauðsföll af völdum þessa vímuefnis. Það er því ánægjulegt að hæstv. heilbrigðisráðherra hyggist koma á fót sérstökum viðbragðshópi ásamt því að grípa til fleiri aðgerða til að fyrirbyggja eða lágmarka skaða sem af efninu getur stafað.

Þetta er hins vegar aðeins ein birtingarmynd á risastóru vandamáli sem taka þarf á. Skortur er á úrræðum fyrir börn í vanda. Forvarnir hafa dregist saman og geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn er ábótavant. Þessi ríkisstjórn hefur lýst því yfir að áhersla verði lögð á úrbætur í málaflokknum og treysti ég henni til góðra verka. Ég er sveitarstjórnarmaður og við sinnum nærþjónustu, barnavernd, og þótt mikið hafi áunnist með breyttum áherslum og vonir séu bundnar við farsældina er enn langt í land. Það var mikilvægur áfangi þegar ríkið tók yfir málefni barna með fjölþættan vanda í vetur. Ríkið sér þá um þyngstu tilfellin en eftir sem áður er ábyrgðin í höndum sveitarfélaga. Þau eru hins vegar í misjafnri stöðu til að sinna þessum málaflokki sem verður sífellt þyngri. Starfsfólki sveitarfélaganna sem annast málefni barna verður ekki þakkað nóg, virðulegi forseti. Efla þarf forvarnir, eyða biðlistum og fjölga meðferðarúrræðum. Það krefst samvinnu allra sem koma að málefnum barna og ungmenna. Hér þarf að efla samtakamátt samfélagsins. Tökum okkur taki, sameinumst um að laga þetta. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)