156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

Störf þingsins.

[13:56]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég vil koma hér upp og halda aðeins áfram að ræða afnám samsköttunar sem verið hefur til umræðu undanfarna daga og vinstri stjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur nú boðað. Ég finn mig sérstaklega knúna til þess eftir að hæstv. fjármálaráðherra hló við í þingsal þegar þingmenn lýstu yfir áhyggjum af þessari aðgerð og sagði jafnframt að um væri að ræða óverulegar upphæðir. En þótt þeir 2,5 milljarðar kr. sem aðgerðin á að skila kunni að mati hæstv. ráðherra að vera lág upphæð í ríkiskassanum þá skipta allar upphæðir máli fyrir flest fólk. Geti hjón sparað sér 50.000, 75.000 eða 100.000 kr. á samsköttun þá er það há upphæð fyrir viðkomandi heimili. Samsköttun hefur t.d. þann ágæta kost að sambúðaraðilar fullnýta persónuafslátt hvors annars og það getur komið sér vel þegar mikill munur er á launum hjóna eða sambúðarfólks, sé annar aðilinn í hlutastarfi, sinni börnum eða í námi. Þetta hefur nýst vel fyrir stóran hóp fólks, ungs fólks sem er á fullu að koma sér upp heimili og fjölskyldu. Það er fólkið sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur finnst eðlilegast að skattleggja aukalega. Þetta er fólkið sem leggur mest á sig til að hlutirnir gangi upp, tekur að sér aukastörf o.s.frv. Afnám samsköttunar mun því lenda illa á barnafjölskyldum sem eru í svokölluðu harki en hingað til hafa hjón eða sambúðarfólk í miklum mæli nýtt sér þennan möguleika sem felst í samsköttun. Nú getur fólk reiknað þetta sjálft með reiknivél sem hagfræðingur nokkur hefur búið til og birt á netinu. (Forseti hringir.) Þar er hægt að sjá það svart á hvítu hvað þessi aðgerð mun fela í sér fyrir hvert heimili. Þetta er að mínu mati ekki einu sinni dulbúin skattahækkun, (Forseti hringir.) eins og einn af verkalýðsforkólfunum orðaði það í gær, heldur er hér um grímulausa skattahækkun á heimilin að ræða.