156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

Störf þingsins.

[13:59]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Frú forseti. Ný ríkisstjórn hefur boðað að hún gangi samstiga til verka til að ná stöðugleika í íslensku efnahagslífi og stuðla að aukinni verðmætasköpun. Þetta verði gert með því að vinna að fjölbreytni í atvinnulífi, hagstæðum rekstrarskilyrðum fyrirtækja, stutt verði við vöxt nýsköpunar og tækni sem og að ýta undir verðmætasköpun í matvælaframleiðslu, bæta samskipti ríkis og sveitarfélaga og treysta stoðir hinna dreifðu byggða.

Virðulegi forseti. Þetta var nú ekki það fyrsta sem þingmönnum Norðvesturkjördæmis datt í hug þegar stórfelld hækkun á veiðigjöldum var boðuð í samráðsgátt stjórnvalda þann 25. mars sl. Í Norðvesturkjördæmi eru nær eingöngu lítil og meðalstór fjölskyldufyrirtæki í útgerð og vinnslu og mun skattahækkun sú sem boðuð er verða þungt högg á rekstur þeirra og þá sérstaklega minni fiskvinnslur. Margir rekstraraðilar hafa á undanförnum dögum stigið fram og lýst neikvæðum áhrifum skattlagningarinnar og vil ég þar sérstaklega vekja athygli á Íslandssögu á Suðureyri, Odda á Patreksfirði og G.Run í Grundarfirði sem eru burðarásar í atvinnulífi í sínum sveitarfélögum.

Hækkun veiðigjalds leiðir óhjákvæmilega til þess að það dregur úr fjárfestingu og viðhaldi fyrirtækjanna sem hefur keðjuverkandi áhrif á annan rekstur í sveitarfélögunum, t.d. á vélsmiðjur og aðra þjónustuaðila og einnig fyrirtæki í nýsköpun og þar er ekki ofmælt.

Virðulegur forseti. Það vakti strax athygli hversu illa er að verki staðið hjá hæstv. matvælaráðherra í þessu máli. Of knappur tími var gefinn til samráðs eða einungis sjö virkir dagar. Það er harla óvenjulegt og ætti reyndar að vera tilefni sérstaks rökstuðnings ráðherra í greinargerð með frumvarpinu. Og hver eru svör ráðherra við þessum spurningum? Engar ástæður fyrir sléttum tímamörkum eru tilgreindar í greinargerð með frumvarpinu og ráðherra hefur ekki gefið neinar skýringar. Þá hefur ráðherra heldur ekki útskýrt hvernig ráðuneytið kemst að þeirri niðurstöðu að frumvarpið muni ekki hafa nein efnahagsleg áhrif á þau sveitarfélög sem byggja tekjur sínar að miklu leyti á útsvari starfsfólks í sjávarútvegi. Í óundirbúnum fyrirspurnatíma í gær var ekki að skilja á hæstv. forsætisráðherra annað en að þetta væri aðeins fyrsta skref í frekari hækkun (Forseti hringir.) auðlindaskattsins og hefur talan 30 milljarðar verið nefnd í því sambandi.

Virðulegur forseti. Er kannski kominn tími á að Vesturport skoði að gera aðra (Forseti hringir.) þáttaröð um vertíðina? Mér sýnist að hún gæti jafnvel orðið í beinni útsendingu; áform ríkisstjórnar Viðreisnar, Samfylkingar og Flokks fólksins um stórfelldar skattahækkanir á lítil og meðalstór fjölskyldufyrirtæki (Forseti hringir.) í útgerð og vinnslu í Norðvesturkjördæmi að veruleika.