156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

Störf þingsins.

[14:02]
Horfa

Jónas Yngvi Ásgrímsson (Flf):

Virðulegi forseti. Eins og sést þá er ég nú ekkert unglamb lengur en þegar ég ólst upp þá var eitt af kennileitum þess að verða fullorðinn að kaupa eigin íbúð. Til þess var hægt að nýta sparimerki, annað sparifé og lán frá Húsnæðisstofnun ríkisins. Ekkert af þessu til lengur eiginlega. Á þessum tíma, í kringum 1985, gátu flest þau sem voru eldri en tvítug fjárfest í eigin húsnæði og framboðið á margs konar íbúðum var nægt. En Mammon vill sitt og íbúðaverð hækkaði og það varð sífellt erfiðara fyrir unga fólkið að fjármagna eigin íbúðir. Á tímabili voru foreldrar farnir að lofa láni eða að aðstoða á annan hátt við fjármögnun íbúða. Þetta varð til þess að bilið milli þeirra betur settu og hinna sem höfðu minna milli handanna breikkaði og þeir tekjuminni áttu sífellt erfiðara með að eignast fasteign. Á sama tíma lagði ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks niður verkamannabústaðakerfið og þar með hvarf traustur bakhjarl verkafólks. Undanfarin ár hefur þó keyrt um þverbak. Lóðir hafa gengið kaupum og sölum með tilheyrandi hækkun á lóðaverði. Byggt hefur verið á svokölluðum þéttingarreitum sem eru aldýrustu lóðir sem hægt er að fá, íbúðir byggðar þar sem ekki eru hugsaðar fyrir unga fólkið sem er að reyna að kaupa sína fyrstu íbúð.

Til allrar hamingju er þessi óheillaþróun í íbúðabyggingum að taka stórum breytingum. Byggingarfélög eins og Bjarg og Blær hafa tekið að sér að byggja hagkvæmt húsnæði fyrir leigjendur. Sú ríkisstjórn sem nú er tekin við hefur tekið í taumana til að snúa þessari þróun við. Með breytingum á hlutdeildarlánum og bættum reglum verður ungu fólki gert mögulegt að kaupa eða leigja íbúðir á hagstæðari kjörum en þekkst hefur um árabil. Með samningum ASÍ, BSRB og Reykjavíkurborgar hefst stórfelld uppbygging í Úlfarsárdal sem vonandi mun stórauka framboð á hagkvæmu húsnæði fyrir fyrstu kaupendur og leigjendur. Já, það er komið vor og sumarið nálgast með bjartari tímum fram undan.