meðferð erinda í forsætisráðuneyti.
Virðulegi forseti. Mig langaði að koma hér upp og spyrja virðulegan forseta að því hvort hún hyggist skoða það frekar sem var hér til umræðu áður um það að hæstv. forsætisráðherra hafi ekki sagt þinginu satt varðandi þau mál sem fjölluðu um meðferð á trúnaðarupplýsingum í forsætisráðuneytinu, af því að nú eru komin fram ný gögn um að það sé nú bara orð á móti orði hvort hér var sagt satt eða ekki. En samt brást hæstv. forsætisráðherra ókvæða við þegar því var velt hér upp hvort hún hefði sagt satt eða ekki. Því vil ég falast eftir því að hæstv. forseti gangi eftir því hvað er rétt í þessu máli, af því að við getum ekki liðið það hér að ekki sé farið með rétt mál í þinginu. Ég get einnig upplýst hv. þingheim um það að hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd mun fjalla um meðferð trúnaðarupplýsinganna í þessu máli og hefur kallað eftir öllum gögnum í því. En ég vil ganga eftir því við virðulegan forseta hvort þessar nýju upplýsingar sem hafa komið fram, sem sýna það bara að þarna er orð á móti orði, skýri hvernig er í pottinn búið í þessu máli.