meðferð erinda í forsætisráðuneyti.
Frú forseti. Ég vil fyrst þakka hv. þingmanni og formanni stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, Vilhjálmi Árnasyni, fyrir að taka þetta mál til skoðunar strax með snaggaralegum hætti í nefndinni. Það verður þá væntanlega á fundi eftir páskahlé sem hæstv. forsætisráðherra kemur til skrafs og ráðagerða.
Ástæðan fyrir því að ég kem hingað upp er að benda virðulegum forseta á að það féllu býsna hvöss orð hér í umræðunni um þetta mál þar sem hæstv. forsætisráðherra, mjúklega sagt, gekk býsna langt í að brigsla þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins, get ég nefnt af handahófi, um að tjá sig með ósanngjörnum og óeðlilegum hætti í þessu efni. Ef hæstv. virðulegur forseti tekur þetta til skoðunar þá held ég að það væri alveg einnar messu virði að skoða hvort tilefni er til þess fyrir hæstv. forsætisráðherra að mögulega biðja þingflokksformann Sjálfstæðisflokksins afsökunar (Forseti hringir.) á orðum sínum í ljósi þess sem nú hefur komið fram.
(Forseti (ÞSv): Forseti mun íhuga orð þingmannanna beggja.)