156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

tekjustofnar sveitarfélaga.

98. mál
[14:09]
Horfa

Frsm. um.- og samgn. (Guðbrandur Einarsson) (V):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd umhverfis- og samgöngunefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, og varðar niðurfellingu fasteignaskatta í Grindavíkurbæ.

Með lögum nr. 4/2024, um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, sem samþykkt voru á Alþingi 31. janúar 2024 voru lögfest fimm ákvæði til bráðabirgða, XXIX– XXXIII. Með ákvæðum XXIX, XXX og XXXI, var Grindavíkurbæ veitt skilyrt heimild til að fella niður fasteignaskatta vegna álagningar á árinu 2024. Lagasetningin var hluti af viðbrögðum stjórnvalda til að bregðast við þeirri náttúruvá sem þá vofði enn yfir Grindavíkurbæ, en bærinn var rýmdur 10. nóvember 2023 eftir að lýst var yfir neyðarstigi almannavarna. Með frumvarpinu er lagt til að framlengja heimildir Grindavíkurbæjar til að fella niður fasteignaskatta í sveitarfélaginu vegna náttúruvár sem steðjar enn að sveitarfélaginu. Með frumvarpinu er lagt til að vegna náttúruvár sem steðjar enn að Grindavíkurbæ verði heimildir sveitarfélagsins til að fella niður fasteignaskatta framlengdar svo þær taki einnig til fasteignaskatta sem lagðir voru á fasteignir vegna ársins 2025.

Nefndin fjallaði um málið og reifaði umsagnir og fékk á sinn fund gesti. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.

Samkvæmt 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga skulu sveitarfélög árlega leggja fasteignaskatt á allar fasteignir sem metnar eru í fasteignamati 31. desember á næstliðnu ári samkvæmt fasteignaskrá nema í lögunum sé kveðið sérstaklega á um annað. Með bráðabirgðaákvæði XXIX var Grindavíkurbæ veitt heimild til að falla frá álagningu fasteignaskatts í heild eða að hluta á árinu 2024, vegna yfirvofandi náttúruvár. Jafnframt var bæjarstjórn heimilt að gera greinarmun á fasteignum þegar fasteignaskattur er felldur niður í heild eða að hluta á grundvelli þess í hvaða flokk fasteignir falla skv. 3. mgr. 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, eða hvort þær eru í þéttbýli, dreifbýli eða á hættusvæðum sem skilgreind eru af Veðurstofu Íslands. Með ákvæði til bráðabirgða XXX var bæjarstjórn jafnframt veitt heimild til að fresta hverjum gjalddaga ársins 2024 um sex mánuði og með ákvæði til bráðabirgða XXXI var gildistími lögveðs í fasteign sem er andlag fasteignaskatts ársins 2024 tvöfaldaður úr tveimur árum í fjögur. Óvissa ríkir enn um búsetu í Grindavíkurbæ vegna yfirvofandi náttúruvár og sem fyrr segir er lagt til að gildistími ákvæðanna verði framlengdur þannig að þau taki einnig til álagningar fasteignaskatta á árinu 2025.

Við meðferð málsins fyrir nefndinni var sérstaklega fjallað um fjárhagsstöðu Grindavíkurbæjar en í umsögn sveitarfélagsins um frumvarpið var athygli Alþingis vakin á því að þar er ekki lagt til að framlengja gildistíma ákvæðis til bráðabirgða nr. 32. Ákvæðið mælti fyrir um breytingu á viðmiðum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga við útreikning á svokölluðu fasteignaskattsjöfnunarframlagi til sveitarfélags síns í þeim tilgangi að koma í veg fyrir skerðingar vegna ársins 2004 og óskar Grindavíkurbær eftir því að gildistími ákvæðisins verði framlengdur vegna ársins 2025. Fram kom að skattstofn til álagningar fasteignaskatts hjá Grindavíkurbæ hafi minnkað verulega þar sem stærstur hluti íbúðarhúsnæðis er kominn í eigu Þórkötlu og þær fasteignir því ekki teknar með við útreikning jöfnunarsjóðs á framlaginu. Meðan ekki sé lagður á fasteignaskattur í þéttbýli í Grindavík sé brýn þörf á framlengingu bráðabirgðaákvæðisins en með því fái Grindavíkurbær slíkt framlag til jafns við önnur sveitarfélög vegna ársins 2025.

Fasteignafélagið Þórkatla var stofnað á grundvelli laga um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík, nr. 16/2024, en í 2. mgr. 7. gr. þeirra er mælt fyrir um undanþágu félagsins frá greiðslu fasteignagjalda, lóðarleigugjalda til opinberra aðila og þinglýsingar- og stimpilgjöldum. Við meðferð málsins fyrir nefndinni kom fram að bæði Grindavíkurbær og framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavík leggja áherslu á og hafa sett fram tillögur til ráðuneyta um að þrengt verði að undanþáguákvæðinu. Er m.a. vísað til þess að ekki sé skýrt hvort vatns- og fráveitugjöld falli undir samheitahugtakið „fasteignagjöld“, sbr. 1. tölul. fyrrgreinds ákvæðis, en eðlilegt sé að félagið greiði bæði vatnsgjald og fráveitugjald enda sé rekstur þessara veitukerfa forsenda þess að hægt sé að halda fasteignunum við. Grindavíkurbæ sé skylt að þjónusta veitukerfin en vegna undanþágunnar fái bæjarfélagið engar tekjur á móti þeim kostnaði.

Í þessu samhengi bendir nefndin á að lög um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík falla ekki undir málefnasvið umhverfis- og samgöngunefndar. Það gera hins vegar lög um tekjustofna sveitarfélaga sem kveða á um skyldu sveitarfélaga til álagningar fasteignaskatta skv. 3. gr. laganna. Nefndin telur brýnt að skýrt sé hvaða gjöld falla undir hugtakið fasteignagjöld í 1. tölul. 2. mgr. 7. gr. laga um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík. Nefndin telur jafnframt mikilvægt að skýrt sé hvaða sjónarmið liggja til grundvallar undanþágu frá greiðslu skatta og gjalda, sbr. 2. mgr. 7. gr. laganna.

Einnig kom fram að bæði tekjujöfnunarframlag og útgjaldajöfnunarframlag til Grindavíkurbæjar hafi skerst verulega þar sem reiknireglur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga gerðu ekki ráð fyrir áhrifum af jafn fordæmalausum aðstæðum og þeim sem yfirstandandi náttúruvá hefur haft á íbúafjölda hjá sveitarfélaginu, en íbúum hefur fækkað um nær 70% frá því að jarðhræringar hófust í nóvember 2023.

Grindavíkurbær lagði í umsögn sinni áherslu á endurskoðun útreiknings vegna þessara framlaga og nefndin tekur undir þau sjónarmið. Nefndin vill árétta sérstaklega að hún tekur undir með Grindavíkurbæ um að ekki verði gengið svo nærri fjárhagsstöðu bæjarfélagsins að rekstrarhæfi þess sé ógnað.

Almennt ríkir einhugur um mikilvægi þess að endurreisa samfélagið í Grindavík en þá þurfi að tryggja að Grindavíkurbær hafi fjárhagslega burði til að svo geti orðið. Nefndin beinir því til ríkisstjórnarinnar að framangreind atriði er varða fjárhagsstöðu Grindavíkurbæjar verði skoðuð sérstaklega og að mynduð verði stefna sem fyrst um búsetu og atvinnurekstur í Grindavík til framtíðar.

Nefndin tekur að lokum undir með Grindavíkurbæ, að mikilvægt sé að afgreiða málið sem fyrst svo forsendur við álagningu fasteignaskatts á árinu 2025 liggi skýrt fyrir.

Að framansögðu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Hv. þm. Jens Garðar Helgason var fjarverandi við afgreiðslu þessa máls en undir nefndarálitið skrifa sá sem hér stendur og hv. þingmenn Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Ingibjörg Davíðsdóttir, Dagur B. Eggertsson, Fida Abu Libdeh, Jónína Björk Óskarsdóttir, Ólafur Adolfsson og Sigurður Helgi Pálmason.

Virðulegi forseti. Ég hef nú lokið máli mínu um þetta tiltekna frumvarp. En mig langar, af því ég hef ágætistíma, til þess að fjalla aðeins meira um Grindavík og stöðuna þar. Við erum hér að ræða framlengingarmál sem er í raun og veru einfalt og ætti að ganga hratt í gegn. Ég tek ofan fyrir Grindavíkurbæ að óska eftir því að halda þessu máli áfram með þessum hætti því að þarna er Grindavíkurbær í raun og veru að afsala sér tekjum en auðvitað með það að markmiði að allir sitji við sama borð. Mér finnst eðlilegt og rétt að nýta þann tíma sem ég hef til að fjalla aðeins meira um stöðuna í Grindavík, sem ég hef reyndar gert ansi oft frá því að þessir atburðir áttu sér stað fyrir einu og hálfu ári síðan og ekki sér fyrir endann á. Mér rennur bara einfaldlega blóðið til skyldunnar að nýta þann tíma sem ég hef til þess að ræða málefni Grindavíkur.

Mig langaði kannski fyrst til að þakka fyrir það sem vel hefur verið gert. Það er mýmargt. Varnargarðarnir hafa að sjálfsögðu bjargað Grindavík og bjargað orkuverinu okkar. Það er búið að eyða milljörðum í að byggja þá og fyrir það ber að þakka. Þrátt fyrir að auðvitað hafi verið lagðar aukaálögur á samfélagið til þess að byggja þá þá var þetta mikilvæg ákvörðun á sínum tíma. Mig langar líka að hrósa fyrir það að fyrri ríkisstjórn brást við til að hjálpa til við að koma Grindvíkingum í öruggt skjól, sem tókst bara bærilega þó að einhverjir séu enn þá í þeirri stöðu að hafa ekki þetta öryggi og skjól sem við vildum að allir hefðu. Það var farið í það að veita launastuðning sem virkaði vel, og húsnæðisstuðning til þeirra sem þurftu að taka á sig leiguskuldbindingar og síðast en ekki síst rekstrarstuðning til handa fyrirtækjum til að viðhalda ráðningarsambandi sem skiptir miklu máli að væri til staðar. En auðvitað horfum við upp á það eftir því sem tímanum vindur fram að það ráðningarsamband hefur verið að trosna og við sjáum mörg dæmi þess að þannig hafi það verið. Margir hafa hreinlega bara gefist upp á að hafa fólk í vinnu vegna þess kostnaðar sem á fyrirtækin falla.

Bæjarstjórnin hefur lengi verið að tala fyrir því að það þurfi að hraða uppbyggingunni í Grindavík og hefur vegna þess kallað eftir aðstoð frá ríkinu. Þar er fyrst og fremst verið að skoða ásýndina sem blasir við okkur þegar við förum þarna uppeftir og sjáum afgirtu svæðin, lokuð svæði, gjótur sem til staðar eru. Kallað er eftir því að Grindavíkurbær fái aðstoð við að loka á þessum gjótum sem til staðar eru og taka þessar girðingar í burtu. Það er auðvitað mikilvægt að skoða möguleikana á því að færa sveitarfélagið í betra horf með því að taka á þessum málum. Spurningin er auðvitað — og það er kannski ekki mitt að meta hvenær eigi að fara í uppbyggingu, það er kannski sérfræðinga að meta hvenær hægt er að gera það. Einhverjir hafa nú talað um að í síðustu lotu hafi sprungur gliðnað í Grindavík um einhverja sentímetra þannig að það þurfi einhverjir sérfræðingar að skoða það. En þetta er auðvitað bara mikilvægt mál sem rétt er að ræða við stjórnendur í Grindavík og aðstoða sveitarfélagið þá til að ná vopnum sínum og geta þá farið að bjóða Grindavíkurbæ sem íverustað til lengri tíma en ekki bara þannig að fólk sé að koma bara til vinnu.

En síðan þurfum við, virðulegur forseti, að horfa á það sem hefur verið að mælast í lýðheilsuvísum, að andlegri heilsu Grindvíkinga hefur verið að hraka. Síðustu lýðheilsuvísar voru einmitt kynntir í Grindavík. Þar kom fram að við þurfum að vera á varðbergi gagnvart andlegri og félagslegri stöðu margra Grindvíkinga. Við vitum auðvitað að margir og vonandi flestir hafa náð að koma sér vel fyrir og aðlagað sig breyttum aðstæðum. En það eru bara ekki allir í þeirri stöðu og það er nauðsynlegt að við horfum til þess.

Mig langar líka að nefna tvö félög sem hafa verið stofnuð í Grindavík og heita Járngerður og Þórkatla. Þetta eru nú gömul nöfn úr þjóðsögunum í Grindavík, Járngerður og Þórkatla. Önnur bjó á Járngerðarstöðum og hin bjó á Þórkötlustöðum. Hún er merkileg, þessi saga. Íbúarnir stóðu fyrir stofnun þessa félags, Járngerðar, sem hefur þann tilgang að koma Grindvíkingum heim fljótt og vel. Félagið Járngerður hélt stofnfund uppi í Grindavík þar sem fleiri hundruð félagsmanna voru skráð í félagið. Þetta félag sendi frá sér fréttatilkynningu um miðjan mars þar sem það lýsir yfir miklum vonbrigðum með að í tilkynningu ríkisstjórnarinnar um stuðning úrræði væri einungis um 12 daga fyrirvara að ræða. Ég verð bara að taka undir það. Ég tel eðlilegt og rétt þegar breytingar eiga sér stað, hvort sem það er í þessu tilfelli eða öðru, að við höfum einhvern fyrirsjáanleika og að það skipti máli að fólk geti aðlagað sig breytingum. Það er stuttur tími að aðlaga sig svona miklum breytingum eins og hafa átt sér stað uppi í Grindavík, 12 daga fyrirvari. Þannig að ég vil hvetja ríkisstjórnina til að skoða það hvort hægt sé að koma til móts við þá aðila sem hafa þurft á stuðningsúrræðum að halda, að það verði gert með einhverjum öðrum hætti heldur en þessum.

Stjórn Járngerðar talar líka um Þórkötlu og við höfum líka, mörg okkar, talað um Þórkötlu. Hún er auðvitað bara flott og virðingarvert verkefni, að staðið hafi verið að uppkaupum á íbúðarhúsnæði í Grindavík til að skapa fólki búsetu annars staðar. Frábært verkefni. En við erum kannski komin í annan fasa hvað varðar Þórkötlu, horfandi bæði á þá sem ekki hafa fengið aðstoð af því að þeir falla ekki alveg inn í normið og hins vegar hvernig við ætlum að skapa aðstæður fyrir Grindvíkinga til að koma heim.

Mig langaði kannski að nefna dæmi um eldri einstaklinga sem áttu einbýlishús. Til þess að selja einbýlishúsið sitt þurftu þau að taka íbúð upp í. Þau bjuggu ekkert í henni, þau neyddust bara til að taka hana upp í til að geta selt einbýlishúsið sitt. Þessi íbúð var í þeirra eigu þegar ósköpin dundu yfir en þau falla bara ekki undir ákvæði eða skilmála Þórkötlu þannig að þau sitja uppi með íbúð í Grindavík sem þau geta ekki selt og þeirra lífeyrissparnaður er kannski þá bara farinn með þessu. Þannig að kannski mættum við með einhverjum hætti skoða þessi sértæku mál sem skipta marga íbúa miklu máli.

Síðan varðandi þessi stuðningsúrræði. Það hafa ekki allir heldur fallið undir þau. Ég veit um einstaklinga sem fóru til Grindavíkur, keyptu húsnæði til að leigja eftir hrun og hafa staðið sig bara ágætlega hvað það varðar, tóku lán fyrir gos upp á tugi milljóna og fóru í endurbætur. Núna sitja þau uppi með mörg hundruð þúsund í vaxtagreiðslur, fá enga leigu, falla ekki undir rekstrarstuðninginn. Það eru engin úrræði, sjáið þið.

Þetta eru mál sem við þyrftum með einhverjum hætti að grípa. Ég vil bara að biðla til ráðuneytanna og ríkisstjórnar og mun að sjálfsögðu reyna að hreyfa mig eins og ég get í þessu máli til að reyna að taka utan um þessa hópa sem svo sannarlega, og við vitum af þeim, hafa orðið út undan. Það er nauðsynlegt að við skoðum þetta. Síðan hefur Járngerður verið að benda á það hvernig stendur á því að í hollvinannasamningum, sem verið er að gera við íbúa Grindavíkur, þ.e. heimila þeim að fara í gamla húsnæði sitt, sem Þórkatla sannarlega á, í einhvers konar aðlögun og líka þá til að viðhalda húsunum; slá blettinn, þrífa og tékka á því hvort það sé hiti á húsinu eða rafmagn á húsinu, hvort allt sé í lagi og opna glugga og viðra. En það er ekki til staðar heimild til að fá gista. Ég velti því fyrir mér síðast þegar ég var hér uppi í pontu að tala um Grindavík: Þeir sem ekki hafa selt inn í Þórkötlu og eiga sitt eigið húsnæði í Grindavík, þeir mega gista, en þeir sem ætla að fá að vera í húsnæði Þórkötlu, þeir mega ekki fá að gista. Ég næ ekki alveg utan um þetta. Hvað stendur í vegi fyrir því að þeir sem eru búnir að gera hollvinasamning fái að fara inn í húsnæðið og gista, eða þeir mega ekki dvelja næturlangt, held ég að þetta sé orðað? En ef þeir vinna nú næturvinnu og sofa svo bara á daginn þá gætu þeir hugsanlega fengið að gista, ég veit það ekki. En mér finnst alla vega þessi atriði þurfa að fá umfjöllun einhvers staðar í einhverjum þeim nefndum sem við erum með hér á þinginu. Umhverfis- og samgöngunefnd er vissulega ekki með þessi mál á sinni könnu, en af því að ég fæ nú tækifæri til þess að standa hér þá langaði mig til að nefna þessi atriði sem mér finnast skipta máli. Ég reikna að sjálfsögðu með því að þetta mál sem ég var að fjalla um hér og varðar niðurfellingu fasteignaskatta í Grindavík fari hér fljótt í gegnum þingið en legg áherslu á að þessum atburðum í Grindavík er ekki lokið. Það er mikilvægt að við höldum áfram að styðja við samfélagið í Grindavík.