156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

tekjustofnar sveitarfélaga.

98. mál
[14:32]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Guðbrandi Einarssyni fyrir yfirferðina sem sýnir að hann er vel inni í málum, sem ég vissi svo sem, og hefur staðið þétt að baki málefnum Grindavíkur. Það er líka, eins og hann tók fram, þakkarvert það sem gert hefur verið og sú samstaða sem hefur verið hér í þinginu. Ég efast ekkert um að það verði full samstaða um þetta mál hér í gegn. Ég er samt svolítið hugsi yfir stöðu mála þar sem þetta mál og eitt annað eru einu þingmálin sem hafa komið frá hæstv. ríkisstjórn um málefni Grindavíkur, þessi tvö framlengingarmál. Hér erum við að tala um framlengingarmál þar sem allar byrðarnar af framlengingu málsins hvíla á Grindavíkurbæ. Því langar mig að spyrja hv. þingmann hvort ekki hafi staðið til hjá nefndinni að gera einhverjar breytingar eins og Grindavíkurbær kallaði eftir og hvort hv. nefnd hafi fengið einhverjar upplýsingar við vinnslu málsins (Forseti hringir.) um að brugðist yrði við athugasemdum varðandi rekstrarhæfi, varðandi skýrleika á (Forseti hringir.) vatns- og fráveitugjaldi og annað slíkt og af hverju nefndin lagði þá ekki til breytingar.