tekjustofnar sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Við höfum oft og iðulega verið samherjar í málefnum Grindavíkur og reynt að standa saman í því. Eins og ég benti á hér áðan fjallar umhverfis- og samgöngunefnd ekki um önnur mál er varða Grindavík og ekki Þórkötlu sem fór í gegnum efnahags- og viðskiptanefnd. Ef mig misminnir ekki held ég að hv. þingmaður sitji þar núna. Við bendum á það í nefndarálitinu að það þurfi að horfa sérstaklega á þetta. Það er algerlega nauðsynlegt. Ef við ætlum að taka ákvörðun um að Grindavík eigi að lifa þá verðum við að tryggja fjárhagslegt sjálfstæði Grindavíkur með einhverjum hætti sem þarf til. Við í nefndinni höfðum ekkert umboð til að leggja það til í nefndinni sjálfri að Þórkatla og þar með ríkið færi að greiða svokölluð fasteignagjöld. En við tókum undir sjónarmið um að það væri eðlilegt vegna þess að Grindavíkurbær þarf að þjónusta þessi kerfi. Það er á forræði Grindavíkurbæjar að þjónusta þessi kerfi, fráveituna og vatnsveituna, án þess að fá tekjur og við bendum á það í nefndarálitinu að eðlilegt sé að þetta sé endurskoðað.