tekjustofnar sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans andsvar hér. Hversu langur þessi frestur hefði átt að vera, hversu langur þessi fyrirvari hefði átt að vera er erfitt um að segja. Ég hef verið í sambandi við marga Grindvíkinga. Þeir horfa svolítið á það núna, eftir að hafa vitað t.d. að það ætti ekki að kaupa upp smærri fyrirtæki í Grindavík, að þeir þyrftu einhvern fyrirsjáanleika. Þá eru menn kannski að horfa til þess að þetta gos sem var núna fyrir nokkrum dögum síðan fengi að klárast og svo hefðu þeir einhvern tíma til að undirbúa sig fyrir sumarið. Mér hefði sjálfum þótt eðlilegt að við værum ekki að breyta t.d. rekstrarstuðningi með 12 daga fyrirvara heldur að fleyta fólki fram á sumarið. Að rekstrarstuðningurinn hefði átt að halda sér í einhverjum mæli eða á einhvern hátt, án þess að ég hafi einhverja sérstaka útfærslu á því núna, og að þeir aðilar sem vilja vera, vilja halda áfram og telja sig þurfa stuðning til að komast inn á sumarið hefðu fengið þann stuðning. Með 12 daga fyrirvara er verið að kippa fótunum undan mörgum. Ég er ekki ánægður með það, ég get alveg sagt það hér. Þó að ég sé í þessu meirihlutasamstarfi hefði ég kosið að þetta yrði gert með öðrum hætti.