tekjustofnar sveitarfélaga.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið, sem var prýðisgott þó að efnisatriðin væri auðvitað ekki kannski sérstaklega gleðileg. En þá langar mig í seinna andsvari að spyrja hv. þingmann sem framsögumann nefndarálitsins út í stóru myndina, orð og efndir. Hv. þingmaður kom inn á það hér að lítill stuðningur bærist á endanum til lítilla og millistórra fyrirtækja. Fyrirtækjaeigandi í Grindavík, Dagmar Valsdóttir, kom inn á það í viðtali fyrir sennilega þremur vikum síðan að það hefði orðið lítið um efndir miðað við það sem upp var lagt með á fundum með núverandi forsætisráðherra fyrir kosningar. Sér hv. þingmaður fyrir sér að ríkisstjórnin komi með einhverjum hætti til móts við þá sem standa í fyrirtækjarekstri í Grindavík, í litlum og millistórum fyrirtækjum? Þeim var greinilega gefinn ádráttur um að býsna þétt yrði staðið með þeim að afloknum kosningum, kæmust núverandi stjórnarflokka til valda en efndirnar virðast vera litlar enn sem komið er. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort honum sé kunnugt um að þessum hópi verði mætt með einhverjum viðlíka hætti og flaggað var fyrir kosningar miðað við orð þeirrar sem ég vísaði til hérna, Dagmarar Valsdóttur sem lýsti förum sínum ekki slettum.