tekjustofnar sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Við höfum öll talað um að styðja Grindvíkinga, alveg frá fyrstu tíð. Hér hafa fallið orð í pontu, bæði af þeim sem voru í þáverandi stjórnarmeirihluta og þeir sem voru í stjórnarandstöðu, um að standa við bakið á Grindvíkingum og láta þá ekki falla á milli skips og bryggju. Núna er mikilvægt að við tökum á þeim hópum sem hafa fallið á milli skips og bryggju. Þeir eru nokkrir. Ég er búinn að lýsa yfir stuðningi við þessar aðgerðir. Reyndar hef ég lagt fram aðrar tillögur sem voru felldar á sínum tíma. Ég styð áframhaldandi stuðning við þá sem hafa fallið milli skips og bryggju í Grindavík og nauðsynlegt að við tökum á þeim og þeir hafi þá einhvern vettvang til að leita á sem mér finnst ekki vera til staðar núna. Að vísa þessu inn í sóknaráætlanir landshluta sé ég ekki að sé ráðlegt á þessum tímapunkti. Það gæti vel verið að það gæti passað einhvern tímann seinna inni í framtíðinni en ekki núna.