156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

tekjustofnar sveitarfélaga.

98. mál
[14:46]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Guðbrandi Einarssyni, formanni umhverfis- og samgöngunefndar, fyrir nefndarálitið. Ég get svo sem sagt að á meðan hv. þingmaður flutti það þá bað ég ekki um andsvar enda held ég að við séum öll í þessum sal sammála um að flýta eða framlengja þetta úrræði og vera ekki að tefja það verkefni. En við náum því nú vonandi hér á næstu dögum. Hins vegar fór þingmaðurinn — ég vil ekki segja út um víðan völl heldur fór hann yfir stærri mynd málsins, sem ég hyggst einmitt gera í ræðu hér á eftir. Þá rifjast það nú upp fyrir mér að hv. þingmaður var oft á tíðum — og ég vil nú byrja á því að þakka fyrir það að í þessum þingsal, í gegnum allan þennan erfiða feril, þá hefur þingið staðið saman um allar þær aðgerðir og þær hafa flestar virkað mjög vel, staðið vel sem skjól fyrir þá Grindvíkinga og fyrirtæki og einstaklinga sem þar hafa þurft á að halda. Og varnargarðarnir hafa auðvitað, eins og hv. þingmaður nefndi, í raun gert kraftaverk, sem við vissum ekki fyrir fram en þeir reyndust vel. En hv. þingmaður var hins vegar einn þeirra sem var oft á tíðum á skjön við salinn hérna á síðasta kjörtímabili, var afar ósáttur við þær tillögur sem hér voru lagðar til, vildi ganga lengra. Núna er hv. þingmaður formaður umhverfis- og samgöngunefndar, í meiri hluta hinna samhentu ríkisstjórnar. Hér er búið að leggja til með 12 daga fyrirvara að framlengja eingöngu þetta mál og reyndar uppkaup eða mögulega að geta gengið inn í Þórkötlu. Hvaða tillögur eru það sem hv. þingmaður vill ganga lengra í? Hvað er það sem hann var að ýja að hér í ræðu sinni að hann væri ósáttur við? Hvað er það sem hann vill gera meira af?