156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

tekjustofnar sveitarfélaga.

98. mál
[14:48]
Horfa

Frsm. um.- og samgn. (Guðbrandur Einarsson) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að það nú rangt hjá hv. þingmanni að sá sem hér stendur hafi verið ósáttur og verið á móti þeim aðgerðum sem farið var í. Aftur á móti þegar Þórkatla var stofnuð þá lagði ég fram breytingartillögur. Ég hef stutt allar tillögur sem fram hafa komið um stuðning til handa Grindvíkingum, allar tillögur, nema það að ég hafði uppi breytingartillögur þegar Þórkatla var stofnuð. Eigum við þá ekki að segja að hv. þingmaður hafi verið á móti mínum tillögum frekar en að ég hafi verið á móti því sem hér hefur verið gert? Enda sagði ég það, hafi hv. þingmaður hlustað á það sem ég sagði, að mér fannst of bratt farið að taka stuðningsaðgerðirnar af með 12 daga fyrirvara. Mér finnst það of bratt. Ég hef líka viljað skoða það með hvaða hætti væri hægt að koma til móts við þá sem hafa átt smærri fyrirtæki í Grindavík sem hafa hreinlega ekki getað verið í starfsemi og jafnvel geta ekki farið af stað. Sum þeirra eru girt af. Þá spyr maður: Hvað á að gera við fyrirtæki sem geta ekki hafið starfsemi? Á bara að láta fólkið fara á hausinn? Sumir eru í persónulegum ábyrgðum. Eigum við að láta þá aðila bara rúlla? Mér finnst að við eigum að horfa á þessi sérstöku mál með einhverjum hætti og aðstoða þá sem eru að fara núna illa út úr þeirri stöðu sem uppi er í Grindavík. Það snýr að þessum fyrirtækjum sem ekki hafa getað hafið rekstur, einhvers konar viðspyrnustyrkir til að fyrirtæki geti hangið fram á sumarið. Hér hafa verið nefndar einhverjar væntingar sem voru gefnar í aðdraganda kosninga, við þurfum auðvitað bara að standa undir þeim.