tekjustofnar sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég held að það sé ekki hægt að stilla því þannig upp að ég hafi verið á móti hans tillögum, ég var að vísa til þess hvernig við vorum að afgreiða mál frá meiri hlutanum á síðasta kjörtímabili. En nú vill svo til að hv. þingmaður er í meiri hlutanum. Það er ekki einfaldlega bara svo heldur er hv. þingmaður formaður umhverfis- og samgöngunefndar þannig að nú getur hv. þingmaður ekki komið hér upp eins og hann er búinn að gera í dag og sagt hvað sér finnist. Nú er akkúrat tækifæri fyrir hv. þingmann að vinna að því innan meiri hlutans að koma fram með aðrar tillögur en voru birtar hér 18. mars af hálfu ríkisstjórnarinnar, sem hann styður væntanlega, að það séu bara 12 dagar í það rekstrarstuðningurinn detti niður — hann er farinn og við erum komin hér inn í 8. apríl — húsnæðisstuðningurinn detti út. Lánasamningar eða stuðnings- og brúarlánin sem minni hlutinn á síðasta kjörtímabili talaði niður, nú á að framlengja það um heilt ár, sem ég styð. Þá á ekki að kaupa frekar hús. (Forseti hringir.) Nú er tækifæri fyrir hv. þingmann, af því að núna er hann í meiri hluta, (Forseti hringir.) að beita sér í því en ekki koma hingað upp og tala um einhverja óskalista. Ég gæti gert það en ég geri það ekki. (Forseti hringir.) En nú gæti hv. þingmaður beitt sér.