156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

tekjustofnar sveitarfélaga.

98. mál
[15:14]
Horfa

Frsm. um.- og samgn. (Guðbrandur Einarsson) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu hér. Mér sýnist við vera að mestu leyti samstiga í þessu máli, að klára þetta mál fljótt og vel til að Grindavíkurbær geti þá farið að leggja eða leggja ekki á álögur, eins og hér er verið að leggja til. Það sem gerist í raun og veru í tekjuskattsjöfnunarframlaginu er að það eru teknar tekjur fyrra árs og íbúar þessa árs þegar verið er að reikna þetta út og þá eru allt í einu rosalega miklar tekjur af því að það bjuggu margir í Grindavík en svo fækkaði þeim alveg svakalega. Þegar þú deilir fáum íbúum í miklar tekjur þá hverfur bara jöfnunarsjóðsframlagið þannig að að því leytinu til vantar upp á reglur jöfnunarsjóðsins, sem við erum svo að fara að ræða væntanlega hér á eftir og í framhaldinu, til að taka á svona breytingu sem þarna á sér stað. Það er engin heimild fyrir jöfnunarsjóðinn að breyta þessu en við getum auðvitað breytt þessu í jöfnunarsjóðslögunum ef við svo kjósum. Og þar til viðbótar á jöfnunarsjóður að hafa tækifæri til að bregðast við þegar sveitarfélög lenda í svona vanda eins og Grindavíkurbær er að lenda í núna. Er ekki rétt að við skoðum það með hvaða hætti jöfnunarsjóður getur brugðist við þegar sveitarfélög lenda í viðlíka vanda og Grindavíkurbær hefur verið að lenda í? Ég skal ekki um það segja hvort þetta verður eina tilvikið til allrar framtíðar, en er ekki gott fyrir okkur að búa þá til einhverja þá lagaumgjörð í gegnum jöfnunarsjóðskerfið okkar sem kemur í veg fyrir svona, að deilitalan verður snarvitlaus?