tekjustofnar sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Guðbrandi Einarssyni fyrir þessa spurningu. Ég tek undir með hv. þingmanni að það er mjög mikilvægt að það sé einhver almenn leið eða almenn regla innan jöfnunarsjóðsins til að bregðast við áföllum hjá sveitarfélögum og skyndilegu áföllum eins og náttúruhamfarir geta verið á fjárhag sveitarfélaga og samsetningu þeirra og aðstæður. Að sjálfsögðu á að gera það. En það sem ég er að benda á í þessu tiltekna máli sem við fjöllum um hér er að í lögum um jöfnunarsjóðinn var sett undanþáguákvæði þegar lögum um fasteignagjöld var breytt síðast og gefin undanþága frá álagningu fasteignagjalda, þá var gerð bráðabirgðabreyting á jöfnunarsjóðslögunum til að bregðast við breyttri stöðu í Grindavík af því að almenna ákvæðið var ekki til. Það sem ég er að gagnrýna núna er af hverju slíkt bráðabirgðaákvæðið var ekki framlengt eða aðlagað að núverandi aðstæðum af því að það liggur ekki fyrir hvernig á að tryggja fjárhag Grindavíkur og rekstrarhæfi öðru leyti. Svo er það bara næsta verkefni að gera almennu — og læra af þessari reynslu þegar við breytum jöfnunarsjóðslögunum. Ég er algjörlega til í þá vinnu en ég get ekki fullyrt um hvenær sú vinna klárast hér. En af reynslunni að dæma, ég hef verið hér í 12 ár og mestallan tímann í umhverfis- og samgöngunefnd, þá hefur þinginu ekki enn þá tekist að breyta lögum um jöfnunarsjóð, svo umdeild eru þau nú alltaf.