156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

tekjustofnar sveitarfélaga.

98. mál
[15:18]
Horfa

Frsm. um.- og samgn. (Guðbrandur Einarsson) (V):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir hans andsvar hér. Mig langar, bara svona til að ná utan um skipulagið fram að páskum, að spyrja: Er hv. þingmaður að leggja það til að þetta mál fari inn í nefndina aftur? Það mun þýða það að málið verður ekki tekið til 3. umræðu fyrr en eftir páska. Það er búið að skipuleggja starf nefndarinnar fram að páskum, af því að ég þykist þess fullviss að þrátt fyrir að um frekari gestakomur yrði að ræða þá verði málinu ekki breytt. Ég þarf bara að fá það á hreint sem formaður nefndarinnar: Er þetta tillaga um að málið verði kallað til baka og einhverjir gestir verði kallaðir fyrir nefndina eða fellur hann frá þeirri hugmynd sinni til að klára málið fyrir páska?