156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

tekjustofnar sveitarfélaga.

98. mál
[15:19]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar og fá skýrleika í það. Ég legg mikla áherslu á að þetta mál klárist fyrir páska en þar sem ég er ekki nýr í þingstörfum þá veit ég það alveg að þegar það er samstaða um mál og mál sem þingheimur telur mikilvæg þá er lítið mál að byrja nefndarfundi fyrr á morgnana, boða til aukanefndarfunda til að bregðast við einstaka málum þar sem ég óska eftir að fengnir verði ákveðnir gestir og það yrði þá kannski útskýrt betur hver næstu skref eru varðandi t.d. rekstrarhæfi Grindavíkurbæjar. Er þetta afturvirkt eða eru þeir að fara að borga þessi gjöld hérna? Og eru einhverjar líkur á því að verði dregið úr þörfinni á þessu eins og hv. þingmaður kom inn á í sinni ræðu og ég ætla að fara yfir í minni annarri ræðu um þessi málefni almennt? Mér finnst vera of mikil óvissa í því þannig að ég tel mjög mikilvægt að við klárum þetta hér fyrir páska og tel að það sé alveg hægt að haga störfum þingsins til þess að svo verði, sé vilji til þess.