tekjustofnar sveitarfélaga.
Frú forseti. Ég vil nú byrja á því að taka undir með þeim hv. þingmönnum sem hér hafa tjáð sig um mikilvægi þess að við klárum þetta mál fyrir páskaleyfi. En mig langar aðeins að víkja að því sem hv. þm. Vilhjálmur Árnason kom að í ræðu sinni varðandi þær athugasemdir sem hann gerði á fyrri stigum málsins og vörðuðu m.a. fasteignagjöld. Þar tók hv. þingmaður sem dæmi tvö gistiheimili með tiltölulega stuttu millibili þar sem annað gistiheimilið greiðir fasteignagjöldin en hitt ekki. Nefndin afgreiðir þá í raun málið til þessarar umræðu óbreytt og tekur ekki tillit til þessara athugasemda. Því velti ég fyrir mér og vildi gjarnan heyra frá hv. þingmanni hvað hann telur að hafi átt sér stað þarna í starfi hv. nefndar. Hvers vegna var ekki tekið tillit til þessara athugasemda þingmannsins og þannig tryggt einhvers konar jafnræði, jafnrétti milli aðila, sem má jafnvel segja að séu í sömu eða í það minnsta mjög svipaðri stöðu?