tekjustofnar sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa góðu spurningar hér og fyrir að vekja athygli á því að það sitja ekki allir við sama borð. Grindavíkurbær fékk þetta erindi til sín frá gistiheimilinu sem er rétt utan við þéttbýlismörkin, gistiheimili sem er, að mig minnir, með um 15 starfsmenn. Þeir eru búnir að þurfa að vera að opna og loka, afbóka og endurgreiða en samt borga bókunargjöld. Rekstrarstuðningurinn hefur ekki hentað nógu vel og annað slíkt, þannig að það hefur verið mjög kostnaðarsamt fyrir þetta gistiheimili. Það þarf því vissulega á þessu úrræði að halda sem við erum að fjalla um hér, að fasteignagjöldin séu lögð niður. En ef Grindavíkurbær hefði ákveðið að setja það svæði sem það gistiheimili er á innan þeirra marka þá hefðu önnur fyrirtæki sem eru kannski búin að vera í fullum rekstri mestallan tímann en hafa vissulega hlotið kostnað af jarðhræringunum — það er atvinnustarfsemi fyrir utan bæjarmörkin sem er að einhverju leyti erfiðara að skilgreina af því að þau fyrirtæki eru á öðruvísi hættusvæðum að hluta til og eru með greiðara aðgengi en sumir aðrir — þá hefði þurft að fella niður fasteignagjöldin af þeim öllum og endanlega ganga frá fjárhag bæjarins til þess að ná þessu eina gistiheimili inn. Ég veit ekki af hverju nefndin tók þetta ekki til skoðunar en það er eins og það hafi verið einlægur vilji nefndarinnar að málið færi óbreytt í gegn, það væri ekki verið að hreyfa við því eins og það kom frá ríkisstjórninni.