tekjustofnar sveitarfélaga.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir svarið. Mig langar líka að víkja í seinna andsvari lítillega að því sem einnig kom fram í ræðu hv. þingmanns og varðar Járngerði, hverjar hv. þm. Vilhjálmur Árnason telur að séu ástæður þess að Járngerður hafi ekki verið kölluð fyrir nefndina, í ljósi þess að mér fannst hv. þingmaður víkja ágætlega að því að þarna væri aðili sem hefði talsvert fram að færa. Annað sem hv. þingmaður vék að í sínu máli varðar þetta svokallaða gistigjald fyrir afnot af húsnæði. Mig langar líka að velta þeirri spurningu til hv. þingmanns hvað hann telur að standi í vegi fyrir því að það komist til framkvæmda. Og vegna andsvars hv. þingmanns við fyrri spurningu þá langar mig að spyrja: Má ganga svo langt að fullyrða að það sitji ekki allir við sama borð við þessa afgreiðslu? En ég ítreka það sem ég sagði áðan og tek undir með þeim þingmönnum sem hér hafa tjáð sig, að ég held að hér inni sé enginn sem ekki vill að þetta mál klárist og hljóti afgreiðslu fyrir páska, ég held að það sé gríðarlega mikilvægt. En eins og hv. þingmaður vék einnig að og hans þingreynsla gefur til kynna þá mælir hann náttúrlega rétt þegar hann segir að það væri hægt að kalla til fleiri aðila með því að boða til aukafundar og þá eftir þörfum að lengja nefndarfundi til að koma fleiri umsagnaraðilum og álitsgjöfum að.