156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

tekjustofnar sveitarfélaga.

98. mál
[15:27]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góðar spurningar. Ég vil taka undir með hv. þingmanni, ég held einmitt að það fylgi góður hugur hjá öllum sem hafa komið að þessu máli, bæði í stjórn og stjórnarandstöðu og í hv. umhverfis- og samgöngunefnd. En það er kannski tvennt sem ég vil nefna með aðkomu Járngerðar. Ég tel að það hafi svolítið vantað bara almennt, bæði hjá fyrri ríkisstjórn og hjá stjórnvöldum almennt og svo núna, að tryggja að það séu fleiri sem koma að ákvarðanatöku varðandi málefni Grindavíkur sem eru á vettvangi, sem eru að lenda í áskorununum eða sem starfa nálægt þeim, í miklu návígi. Ég tók eftir því að eitt það úrræði sem virkaði hvað best varðar einmitt einn aðilann, sem var jákvætt að skyldi koma hingað, þ.e. framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur sem kom fyrir nefndina. Sú framkvæmdanefnd virkaði mjög vel en því er því miður búið að breyta núna. En ég vona að nýtt fólk, og hef svo sem trú á því, muni vinna vel af því að þau sem voru í framkvæmdanefndinni unnu svo mikið í Grindavík, svo nálægt fólkinu og mikið með því. Því tel ég mikilvægt að Járngerður komi fyrir nefndina og upplýsi einmitt um þessar vangaveltur sem við erum með hér og hvernig þetta er og hvaða áskoranir eru þarna. En af hverju kom Járngerður ekki fyrir nefndina? Það held ég að sé nú bara almennt eins og hv. þingmenn stjórnarflokkanna hafa svolítið verið að stýra nefndunum, að keyra málið hratt áfram, takmarka gestakomur og tíma hjá gestunum og passa að það séu ekki að koma of margir. Mér finnst það vera svolítið almennt, því miður, í nefndunum í dag og hef áhyggjur af því.