tekjustofnar sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, niðurfellingu fasteignaskatta í Grindavíkurbæ, auðvitað vegna þeirra jarðhræringa sem hafa nú staðið yfir í rúmlega eitt og hálft ár eða allt frá 10. nóvember 2023. Síðasta gosið fór nú blessunarlega nokkuð vel. Þrátt fyrir að margir hefðu verið að ýja að því að það gæti orðið stórt þá var það nú ótrúlega stutt, sex klukkutímar, og olli sem betur fer litlu tjóni fyrir utan að auðvitað víkkuðu einhverjar sprungur sem þarf þá að kanna betur hvort hafi orðið stærra tjón af. Auðvitað vonum við öll, ekki bara í þessum sal heldur held ég í samfélaginu öllu og ekki síst Grindvíkingar, að þetta hafi nú verið svanasöngur þessara jarðhræringa á Sundhnjúkagígaröðinni þannig að við getum farið að einhenda okkur í uppbygginguna og framtíðina.
Þetta frumvarp per se er hins vegar í sjálfu sér lítið og sætt, eins og við segjum stundum þegar um einfalda hluti er að ræða. Ég get bara sagt það strax í upphafi minnar ræðu að ég mun styðja það og við í Framsókn munum styðja að þetta verði framlengt og teljum það mikilvægt. Upphaflega frumvarpið var sett fram með gildistöku til eins árs og þá voru allir að vonast til þess að þessar jarðhræringar yrðu ekki svona langvinnar og við værum komin á annan stað.
Allar aðgerðir sem fóru af stað í tíð þáverandi ríkisstjórnar og þess þings sem sat hér, og blessunarlega og þakkarvert að allir stóðu saman um þær aðgerðir allar og þær gengu vel, snerust um að búa til tímabundið skjól fyrir einstaklingana með því að kaupa íbúðarhúsnæði þeirra og fyrir lögaðilana sem fengu rekstrarstuðning og húsnæðisstuðning fyrir þá sem þurftu á því að halda, sem voru auðvitað fjölmargir framan af. Þeim hefur aðeins farið fækkandi og það sama gildir um rekstrarstuðninginn. Þegar fram liðu stundir og jarðhræringarnar drógust á langinn var ljóst að það þyrfti að fara að horfa til fleiri þátta og þá komu inn hlutir eins og stuðningslánin eða brúarlánin sem voru hugsuð fyrir fyrirtæki sem gætu notað þá fjármuni til að flytja sig ef það væri nauðsynlegt og byggja upp á nýjum stað eða fara í þær endurbætur sem þyrfti í Grindavík ef aðstæður sköpuðust til að vera í rekstri þar.
Eins og við þekkjum þá voru kosningar í haust og ný ríkisstjórn tók við rétt fyrir jól. Tæplega þremur mánuðum síðar birti ríkisstjórnin tilkynningu og var með blaðamannafund og birti fréttir þar sem sjö ráðuneyti komu saman, 18. mars síðastliðinn, og lýsti skoðun nýrrar ríkisstjórnar á því hvað ætti að gerast á næstunni. Það hefði verið betra, ég ætla að segja það bara hér strax, ef ríkisstjórnin hefði komið fyrr fram með þetta, einfaldlega vegna þess að hluti af þeim yfirlýsingum sem þarna komu fram var að húsnæðisstuðningurinn og rekstrarstuðningurinn myndu falla niður 12 dögum síðar. Það var óheppilegt. Þessi stuðningur er fallinn niður og þau úrræði sem þar tóku við, til að mynda að beina rekstrarstuðningnum inn í sóknaráætlanir landshluta — ég er sammála þeim sem hér hafa talað, mér fannst það vafasamt, sérstaklega með engum fyrirvara. Ég hef meiri skilning á breytingum á húsnæðisstuðningnum. Við vorum að skoða það þegar í október og nóvember að það væri eðlilegt að breyta honum en það var síðan niðurstaðan að framlengja hann óbreyttan fram til 31. mars út af kosningum. En ef sú ákvörðun hefði verið tekin, kannski í annarri viku febrúar, með þeim fyrirvara, þá hefði það verið eðlilegra. Það var vont að þetta gerðist með svona stuttum fyrirvara. Það hefði jafnvel verið betra að framlengja allt um einn mánuð og gefa öllum tækifæri til að koma með einhverjar úrlausnir en ekki síst hvað varðar rekstrarstuðninginn.
Svo er áhugavert að margir töldu að stuðningslánin, brúarlánin sem við settum fram — það má segja að margar af þessum aðgerðum, þessum skjólsaðgerðum, hafi sprottið upp úr þeirri reynslu og lærdómi sem við tókum með okkur út úr Covid, hvernig væri hægt að koma þessu í gegn. Þó að þessar náttúruhamfarir séu auðvitað allt annars konar hamfarir en Covid sem varðaði auðvitað allt landið og alla heimsbyggðina, en þetta er staðbundið verkefni, þá var engu að síður hægt að nota hluta af þeirri aðferðafræði og hún nýttist vel. Við sáum til að mynda að rekstrarstuðningurinn nýttist gríðarlega vel mjög mörgum framan af. Þegar við vorum komin inn í sumarið 2024 var hann þegar byrjaður að fjara út, þ.e. fyrirtækin voru komin með tæki og tól sjálf til að bjarga sér og það var eiginlega ótrúlegt hvað lítil breyting hafði orðið á þeim hluta er varðaði tekjur einstaklinga, hve margir höfðu komist í vinnu annars staðar eða fyrirtækin höfðu með þeim stuðningi sem þau fengu náð að viðhalda ráðningarsambandi og einnig að halda launum. Það er bara mjög mikilvægt til að geta staðið undir eðlilegum heimilisrekstri, sem er auðvitað í tilfelli mjög margra í Grindavík miklu dýrari þegar þú þarft að koma þér fyrir á nýjum stað og taka þessa ákvörðun fyrir utan þessa andlegu íþyngjandi ógn sem það er að þurfa að yfirgefa heimili sitt og neyðast til að selja það og koma sér fyrir á nýjum stað og missa einhvern veginn samfélagið sitt.
Ég hefði líka viljað sjá í þessum aðgerðum frá 18. mars að meira hefði verið tekið utan um þann þátt, þann félagslega, að það hefði verið skýrari sýn eftir 90 daga starfsemi ríkisstjórnarinnar, hún hefði komið fram með svona skýrari sýn á hvað hún ætlaði að gera betur í þeim efnum, af því að það er vaxandi þáttur. Við höfum séð það í atburðum sem hægt er að bera saman við, í öðrum löndum, að það er þessi þáttur, þessi félagslegi og andlegi þáttur, sem skiptir svo miklu máli. Ég hefði viljað sjá einhverjar aðgerðir þar.
Með öðrum orðum, þessar tvær framlengingar voru niðurstaðan hjá nýju ríkisstjórninni og meiri hlutanum, þ.e. að framlengja möguleikann á að selja Þórkötlu um þrjá mánuði, frá 30. mars og væntanlega út í júní. Þá er það sjálfsagt mál að gera það. Það sama gildir hér. En vegna umræðunnar sem var hérna áðan milli hv. þm. Vilhjálms Árnasonar og hv. þm. Guðbrands Einarssonar, formanns umhverfis- og samgöngunefndar, þá spyr ég mig líka, úr því að málið verður kallað inn milli 2. og 3. umræðu, og ég styð það, m.a. til að fá Járngerði til að koma, hvort það mætti ekki alveg skoða það, í stað þess að í nefndarálitinu sé verið að álykta um að það eigi að beina því eitthvert að fasteignagjöld — almennt þegar við tölum um fasteignagjöld þá erum við oft að tala um veitugjöldin líka, svona almennt, en lagalega séð eru fasteignaskattar sér, fráveitugjöld og vatnsgjöld eru eitthvað annað og ekkert frábrugðin rafmagnsreikningnum og hitaveitureikningum, orkureikningnum. Þau eru líkari því. Mér hefði fundist að nefndin hefði alla vega átt að gera tilraun til þess að fá frá ráðuneytinu hvort það væri hægt að setja inn í lög um fasteignaskatta bráðabirgðaákvæði til að árétta það, eins og hv. þm. Vilhjálmur Árnason var eiginlega, að mér fannst, að koma inn á, að í þessu tilviki þegar það væri verið að gefa Grindavíkurbæ þessa heimild til að leggja ekki á fasteignagjöld, þá væri ekki verið að ræða vatnsgjöld og fráveitugjöld. Þá væri hægt að gera það með lagalegum hætti. Mér finnst það eitthvað sem nefndin ætti að skoða úr því að hún heldur fund og hreinlega að biðja ráðuneytið um að fara yfir það hvort sá möguleiki sé fyrir hendi.
Það sama má segja um jöfnunarsjóðinn því að jöfnunarsjóðurinn eða lagahlutinn heyrir auðvitað líka undir umhverfis- og samgöngunefnd. Það hefði mátt breyta þessu litla sæta frumvarpi í einhvers konar bandorm þar sem hugsanlega væri fjallað um þennan jöfnunarsjóðsþátt og hugsanlega hægt að setja fram einhvers konar bráðabirgðaákvæði vegna þessarar stöðu, sem gilti þá bara vegna ársins 2025, og þar sem hér væri verið að fella niður fasteignagjöld með einhverjum tilteknum hætti þá væri hægt að gera það. Nú veit ég vel að það er miklu flóknara og ég tek undir það sem ég held að hv. þm. Guðbrandur Einarsson hafi nefnt, að það er mikilvægt að taka umræðu um hvernig jöfnunarsjóður á að koma að svona málum. Þó að við munum kannski aldrei sjá nákvæmlega sambærileg mál þá er á einhvern hátt eðlilegt að jöfnunarsjóðurinn sé jöfnunartæki á milli sveitarfélaga og það er eðlilegt að þarna sé eitthvert jöfnunartæki sem gerir það að verkum að þegar eitthvað óvænt gerist, eins og náttúruhamfarir eru ávallt, sem veldur svona víðtæku inngripi í starfsemi sveitarfélags og þar með fjárhagsstöðu, þá sé eðlilegt að jöfnunarsjóðurinn komi þar að. Það þurfi ekki að fara í gegnum sér ákvörðun ráðgjafarnefndar jöfnunarsjóðs og sérstakt samþykki ráðherra eða jafnvel ákvörðun ráðherra ef ráðgjafarnefndin kemur sér ekki saman og helst þurfi öll sveitarfélög landsins að samþykkja þetta. Í raun ættu þau að gera það vegna þess að enginn veit hver er næstur í röðinni og hvað getur gerst. Það getur gerst svo margt. Ég veit alveg að það er flókið að búa til svona lagatexta. En mér hefði fundist eðlilegt að það hefði verið skoðað og ávarpað í staðinn fyrir að bara beina því til einhvers, sem er þá samt sem áður umhverfis- og samgöngunefnd eða innviðaráðuneytið eða samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið að einhverju leyti. Það hefði verið gerð tilraun til þess og það kannski gert í nefndinni. Ég held að þetta tvennt myndi hjálpa til við að komast aðeins lengra til að skýra stöðuna fyrir þetta ár, 2025.
Síðan er hérna auðvitað margt annað. Þegar formaður nefndarinnar flutti nefndarálitið þá fór hann aðeins yfir hlutina í stærra samhengi og þá finnst mér líka ágætt að skoða hvað við hefðum, í baksýnisspeglinum, getað gert betur og hvernig við ætlum að koma betur inn núna, frá því að við förum úr þessu skjóli sem við erum búin að vera í og erum alltaf að vonast til að jarðhræringum ljúki svo við getum bara farið í uppbygginguna. Það er margt sem bendir til þess og við heyrum vilja hollvinasamtakanna Járngerðar, við höfum heyrt tillögur frá fólki sem býr í Grindavík sem segir: Við þekkjum hætturnar í Grindavík. Við vitum að það hafa alltaf verið sprungur, það hafa alltaf verið ákveðnar hættur þar. Ef við getum farið að byggja upp nú þegar, ef tíminn þar til við förum í uppbygginguna, biðtíminn frá því sem við erum stödd í núna þangað til við getum farið í uppbygginguna verður eins stuttur og hægt er eru meiri líkur á að það takist. Ef við gerum ekkert, ef við nýtum til að mynda ekki sumarið 2025 þá segir fólk, og ég hef fullan skilning á þessu, að þá séu meiri líkur en minni á að mun fleira fólk missi kjarkinn, tengslin, löngunina til þess að flytja heim.
Þess vegna vil ég bara ávarpa það hér úr ræðustól Alþingis hvort það væri möguleiki á að skoða þær hugmyndir sem hafa varðað Þórkötlu. Ég beini því bara til meiri hlutans og ég beindi því reyndar til forsætisráðherra á fínum upplýsingafundi sem forsætisráðherra átti með okkur þingmönnum Suðurkjördæmis, í aðdraganda þessarar ákvörðunar ríkisstjórnarinnar um hvað ætti að gerast og hvað ekki, að skoða sérstaklega hvort það væri möguleiki á því að heimila fólki, eins og ég veit að það hafa verið hugmyndir uppi hjá hollvinasamtökunum Járngerði og fleirum, að fólk gæti haft möguleika á að fara heim í sumar ef það verður þolanlegur friður í þessum hræringum og prófa að vera þarna yfir sumartímann þegar hættan er hvað minnst, hugsa um húsin sín. Ekkert endilega fyrir mikla greiðslu. Vilji menn síðan fá möguleika á því að ganga lengra þá séu gerðir slíkir samningar. Þá séu meiri líkur en minni á að fólk búi til þessi tengsl, taki áhættuna og prófi. Fari heim í sumar, jafnvel í einhverjum hópum, og búi til þetta samfélag að nýju. Þá séu meiri líkur en minni. Auðvitað er þetta allt sagt með þeim fyrirvara að jarðhræringarnar komi ekki í bakið á okkur. Það verður að segjast eins og er. Ef við hins vegar gerum þetta ekki, ef við bíðum bara eftir því að þeim ljúki og þessi tími kemur kannski ekki fyrr en árið 2026, þá hef ég skilning á því að það verði mun færri sem treysti sér til þess að snúa aftur eða vilji snúa aftur. Fólk verði einfaldlega búið að skjóta rótum annars staðar og búið að missa tengslin og hugann af þessu.
Ég beini því til meiri hlutans hér á þingi og ríkisstjórnarinnar að skoða það alvarlega hvort það væri hægt að fara þessa leið, að heimila fólki að snúa heim, undir formerkjum hollvinasamnings einhvers konar. Vilji menn síðan prófa að setjast að þá geri þeir leigusamning og þá munu auðvitað, eins og hér hefur komið fram fyrr í umræðunni, verða greidd fasteignagjöld af því að þá er fólk búið að snúa aftur. Það þarf svolítið að horfa á það að lagagreinin geti opnað á það að hægt sé að leggja á fasteignagjöld vegna slíks. En það er augljós ávinningur fyrir Þórkötlu og þar með ríkið að fólkið sem hugsar sér að snúa aftur, er með forkaupsrétt að sínum húsum, geti það einfaldlega. Ef það myndi t.d. snúa aftur í sumar, myndi fara að dytta að húsinu, bera á pallinn, bera á gluggana og þakkantinn, mála, slá grasið og viðhalda húsinu og þá er einhver í húsinu, þá er minni hætta á að tjón verði sem séu óbætanleg eða illbætanleg eða miklu dýrari. Ég vildi nota þetta tækifæri til þess að ræða þetta.
Svo ætla ég í lokin að að fjalla líka um það að ég held að það hafi verið vafasamt af ríkisstjórninni að reka tvo úr Grindavíkurnefndinni, framkvæmdanefndinni. Það er bara pólitík. Þegar menn halda því fram að það sé verið að spara peninga þá eru það kjánalegar yfirlýsingar í ljósi þeirra fjármuna sem þarna er um að ræða. Þarna var fólk sem var búið að setja sig vel inn í alla hluti. Að víkja tveimur af þremur úr nefndinni held ég að hafi verið mistök. Ég tek undir með hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni. Þetta fólk var búið að skapa sér virðingu og stöðu, viðurkenningu heimamanna. Ég held að það hefði nýst núverandi ríkisstjórn ekki síður en það nýttist þeirri ríkisstjórn sem sat áður og skipaði þetta fólk til verka.
Að því sögðu vil ég bara segja að þetta mál per se er mikilvægt að klára og það fyrir páska. Við í Framsókn munum styðja það. En ég legg til að úr því að nefndin mun koma saman milli 2. og 3. umræðu þá verði skoðað hvort það sé hægt að setja þarna einhverjar viðbótargreinar til að skýra annars vegar fasteignagjöldin, þ.e. vatnsgjöldin og fráveituna, ekki bara vísa því eitthvert og svo grípur það enginn, og hins vegar jöfnunarsjóðinn, að skoða það, þó að það heyri ekki undir þessi lög, að breyta málinu í einhvers konar bandorm sem hugsanlega gæti gengið eða alla vega að bera það undir ráðuneyti hvort það sé hægt.