tekjustofnar sveitarfélaga.
Frú forseti. Við ræðum nefndarálit og frumvarp um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga. Þetta fjallar í sjálfu sér einfaldlega um áframhaldandi niðurfellingu fasteignaskatta í Grindavík. Nú er það svo að niðurfelling fasteignaskatta af langflestu íbúðarhúsnæði í Grindavík er ákveðin í sérstökum lögum hvað varðar eignir Þórkötlu sem á yfir 900 fasteignir í bænum, íbúðir í bænum. Það er ákvörðun um niðurfellingu þeirra í sérstökum lögum. Þetta frumvarp fjallar um niðurfellingu fasteignagjalda af hendi Grindavíkurbæjar, þ.e. af öðrum fasteignum í Grindavíkurbæ út þetta ár.
Ástæða þessara laga er að niðurfellingin er tímabundin og þarna er um að ræða einstakt tilvik, þetta er af ákveðnu tilefni sem eru náttúruhamfarirnar sem við þekkjum öll, þannig að tilefni lagasetningarinnar er einstakt og sérstakt á margan hátt. Það er ekki aðeins vegna framlengingar á þessum heimildum sem ég kem upp í ræðustól. Ég sé að nefndin hefur verið einhuga um að framlengja þessa heimild og ég tek bara undir með nefndinni. Ég tek einnig undir með ræðumönnum hér á undan mér, hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni og hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni, það eru nokkur atriði þarna sem ég mun koma að í minni ræðu sem þarf kannski að huga betur að í umhverfis- og samgöngunefnd þar sem ekki var tekin afstaða í nefndinni til t.d. jöfnunarframlagsins frá jöfnunarsjóði þrátt fyrir beiðni Grindavíkurbæjar um að þessi heimild, sem er í bráðabirgðaákvæði XXXII, yrði látin gilda einnig út þetta ár til að styrkja fjárhag Grindavíkurbæjar.
Frú forseti. Það er auðvitað mikilvægt að við getum horft fram á endurreisn Grindavíkur að loknum þessum hamförum, hvenær sem það verður, að bæjarfélagið hafi burði til að ganga inn í endurnýjunina sem fram undan verður, hvenær sem það verður, og bærinn geti staðið það af sér fjárhagslega. Og eitt af því er einmitt framlenging á þessari heimild fyrir jöfnunarsjóðinn, að reikna þetta framlag til bæjarins áfram eins og var ákveðið í þeim lögum sem tóku gildi hér í fyrra. Það verði líka látið gilda um þetta ár þannig að bærinn fái þá útreikning á því hvernig jöfnunarframlag geti komið til bæjarins vegna þess að í bænum er auðvitað gjörbreytt ástand fjárhagslega. Grindavíkurbær sem bæjarfélag stendur auðvitað á allt öðrum stoðum núna heldur en fyrir tveimur árum síðan. Íbúum er búið að fækka mjög, það eru engin fasteignagjöld greidd og rekstur í bænum er verulega miklu minni en áður var, þannig að það er gjörbreytt staða. Sveitarfélagið stóð vel áður en til þessara hörmunga kom en hefur þurft að sjá á eftir flestum sínum tekjustofnum. Það er mikilvægt að halda áfram og bendi ég á að umhverfis- og samgöngunefnd þurfi að taka þetta til betri skoðunar. Nefndin afgreiðir þetta, frú forseti, mjög snubbótt í sínu nefndaráliti. Hún segir að nefndin taki undir sjónarmið Grindavíkurbæjar um framlengingu á þessari heimild jöfnunarsjóðs, með leyfi forseta:
„Nefndin tekur undir þau sjónarmið enda ljóst að regluverk jöfnunarsjóðs gerir ekki ráð fyrir þeim fordæmalausu aðstæðum sem upp eru komnar í Grindavík í kjölfar jarðhræringa á Reykjanesi.“
Svo er það bara ekkert meira. Ég tel að það þurfi að ræða þetta. Ég er alls ekki að mæla fyrir því að þessu máli verði eitthvað frestað hérna umfram það að nefndin komi saman, fjalli um þetta og málið komi aftur til þingsins til samþykktar vegna þess að hér hefur verið almenn samstaða um þessar aðgerðir og það er full samstaða um þessa aðgerð sem hér liggur fyrir. En við erum að tala um aðra hluti líka.
Ég vil að því leytinu til nefna nokkur önnur atriði og þar sem ég er búinn að nefna þetta með jöfnunarsjóðinn þá vil ég tala t.d. um það sem vantar einnig. Ríkisstjórnin ákveður það 18. mars síðastliðinn, í sinni kynningu á áframhaldandi aðgerðum fyrir Grindvíkinga og hvað eigi að halda áfram með og hvað eigi ekki að halda áfram, og tilkynnir um það að hún ætli að hætta húsnæðisstyrkjunum og leigustyrkjunum. Þetta er 18. mars. Hún ákveður einnig og tilkynnir það að hún ætli að hætta rekstrarstyrkjum til fyrirtækja. Þessir styrkir höfðu líftíma til 31. mars. Þetta er tilkynnt einhverjum 12 dögum áður en þeir renna úr gildi þannig að menn hafa 12 daga, tæpar tvær vikur, til að átta sig á því að þetta sé sem sagt að falla niður og þeir geta ekki lengur leitað í þessi úrræði sem höfðu þá verið í gildi allar götur frá lagasetningunni fljótlega eftir hamfarirnar. Það er ekki góður bragur á því, frú forseti, að ákveða með svona skömmum fyrirvara að fella niður sértæk úrræði í kjölfar náttúruhamfara eins og þarna áttu sér stað. Þetta kemur mjög illa við mjög marga Grindvíkinga og sérstaklega þá sem reka fyrirtæki.
Það kemur líka ákvörðun um það að ríkisstjórnin ætli ekki að fara í frekari uppkaup húsnæðis í Grindavík og þar á ég við húsnæði sem fellur ekki inn í þessi almennu uppkaup Þórkötlu á íbúðarhúsnæði. Þar á ég við fyrst og fremst við lítil fyrirtæki í Grindavík sem missa núna rekstrarstyrkinn sinn og ríkisstjórnin ætlar ekki að koma meira á móts við þau nema í formi einhvers konar styrkja, hugsanlega í gegnum sóknaráætlun sem ég hef nú ekki séð enn þá hvernig á að útfæra. Ég hefði viljað sjá einhvers konar úrræði fyrir þessi litlu fyrirtæki sem geta ekki rekið sig í Grindavík að óbreyttu vegna þess að þarna er stöðug vá fyrir hendi. Bærinn er rýmdur með reglulegu millibili og auk þess eru mörg þessi fyrirtæki staðsett þannig að það er í rauninni ekki hægt að reka þau, sum þeirra eru á lokuðum svæðum, sum þeirra bara við hliðina á sprungu. Kannski er stærsti hlutinn í þessu að þessi fyrirtæki geta ekki tryggt starfsemi sína. Ekkert tryggingafélag er tilbúið til að veita þeim eðlilegar tryggingar fyrir sinni starfsemi. Það sjá það allir að slík starfsemi er næstum ómöguleg. Þú getur ekki boðið upp á einhvers konar starfsemi þar sem viðskiptavinurinn er í raun ótryggður. Það sjá það allir.
Ég lagði það til í ræðu þegar þetta frumvarp var fyrst lagt fram til 1. umræðu að ríkið myndi hugsanlega koma að einhvers konar vátryggingavernd til þessara aðila þannig að þeir gætu kannski opnað sína starfsemi og farið af stað, ríkið myndi veita einhvers konar lágmarkstryggingavernd. Ég sé ekki að þessi hugmynd hafi verið rædd í nefndinni. Kannski má taka þetta lengra, kannski ekki í þessu máli en í framhaldinu, vegna þess að að óbreyttu um einhverra mánaða skeið, jafnvel misseraskeið, jafnvel áraskeið, verður ekki hægt að reka öll fyrirtæki í Grindavík. Það verða einhver fyrirtæki þar sem verður ekki hægt að reka út af ástandinu. Jú, Jú, þú getur unnið kannski fisk, þú getur landað, kannski rekið matsölustað ef nægur íbúafjöldi kemur, en það er margs kyns starfsemi sem er þannig uppbyggð að þú rekur hana ekki án trygginga. Þá teldi ég að ríkið ætti að íhuga þann möguleika að koma þarna inn í og veita einhvers konar vátryggingavernd til að þetta fólk geti hafið sína starfsemi ef tryggingafélögin halda uppteknum hætti að neita um þessar tryggingar.
Ég hefði einnig haldið að ríkið ætti, það var mín hugmynd þegar ég kom fyrst að þessu máli, hugsanlega að koma með einhvers konar tilboð til þessara minni fyrirtækja, veita þeim uppkaup á húsnæði í Grindavík og bjóða einhvers konar tilboð í það sem gæti verið einhver afsláttur eða eitthvert hlutfall af brunabótamatinu eða fasteignamatinu, þannig að menn ættu einhvers konar útgönguleið og gætu hafið starfsemi annars staðar. Auðvitað er það þjóðhagslega hagkvæmt að menn sem ekki geta rekið fyrirtæki sitt í Grindavík fái kannski eitthvað af þeim fjármunum sem þeir hafa lagt í sínar fasteignir, hluta af þeim, og geti hafið starfsemi annars staðar. Það er þjóðhagslega hagkvæmt í staðinn fyrir að menn einfaldlega tapi öllum sínum sparnaði með þessum náttúruhamförum. Og það er auðvitað þannig, frú forseti, og ég nefndi það hér í minni fyrri ræðu í 1. umræðu, að mér finnst bara að ef við sem þjóð þegar 1% þjóðarinnar sem Grindvíkingar voru, 1% næstum upp á punkt og prik, lendir í svona hörmungum — ef við getum ekki komið í veg fyrir það að tugir eða jafnvel hundruð íbúa þar verði fyrir stórkostlegu fjártjóni þá finnst mér það bara ekki alveg nógu gott. Ég verð bara að segja það. Jú, fordæmi, menn nefna að það séu engin fordæmi fyrir því að atvinnurekendum hafi verið hjálpað á þennan hátt sem ég er að nefna hér. Oft grípa nú tryggingar þetta en í þessu tilviki gera þær það ekki, ekki nema húsnæðið sé ónýtt af völdum jarðhræringa, sprungna eða hraunrennslis. En þarna er ekki um það að ræða. Húsnæðið er þarna en ónothæft vegna þessa sem ég var að nefna. Þetta eru fordæmalausar aðstæður, frú forseti, fordæmalausar. Það er bara það sem ég er að nefna og benda á. Við sem þjóð getum ekki að fullu rétt þá hjálparhönd sem 1% þjóðarinnar þarf á að halda. Ég spyr mig að því hvort það sé sú niðurstaða sem við erum að fara að horfa hér upp á. Ég er ekki sáttur við það.
Þá má nefna mjög margt annað. Grindavíkurnefndin. Stjórnvöld tilkynntu það 18. mars að yfirumsjón þessara mála myndi færast undir forsætisráðuneytið. Fyrri ræðumenn hér í pontu hafa nefnt það að þeim finnist það miður að Grindavíkurnefndin starfi ekki áfram með þeim hætti sem hún hefur gert. Hún var komin í góð tengsl. Ég vil bara taka undir þetta. Ég tel að líftíma þeirrar nefndar hefði mátt lengja enn um sinn. Jarðhræringar standa enn þá yfir og það er ekki útséð um það hvernig þeim muni ljúka á næstunni þannig að ég tel að það hefði verið betra að nýta þá reynslu sem var komin vegna þess að málið er flókið, frú forseti. Málið er flókið, þetta er ekki einfalt mál. Þessir menn sem voru í þessari nefnd voru búnir að starfa lengi að þessu og búnir að kynna sér þetta, voru komnir inn í þetta. Nú á að færa þetta allt inn til forsætisráðuneytisins og eins og sagt er á þetta fólk sem lendir í vandræðum að falla undir aðgerðir á sviði sóknaráætlunar, sem er í raun kannski ekki alveg fullkomlega útfært hvernig á að gerast. En látum gott á vita ef það tekst nú bærilega.
Jarðfræðin er líka áhugaverð, nú hefur þetta breyst að undanförnu. Allir bjuggust við svipuðu gosi og venjulega þarna síðast en úr varð að gosið var minna og skjálftavirknin hreyfði sig í norðurátt, norðausturátt, þannig að það eru einhverjar breytingar í gangi. Ég tel, frú forseti, að við séum að horfa upp á það mjög fljótlega að þessari virkni á þessu svæði gæti farið að linna. Það eru ýmis merki um það eins og þessi síðasti atgangur þarna, skjálftavirknin og skjálftavirkni á öðrum svæðum lengra í vestur sem gætu verið vísbendingar um að þessu gæti hugsanlega verið að linna. Og hvað gerist þá? Þá tekur við, vonandi, uppbygging í Grindavíkurbæ, kannski á svipaðan máta og í Vestmannaeyjum 1973 þegar gosinu lauk. Þá hófst uppbygging sem var auðvitað erfið og tók á. Fólk, margt hvert, flutti til baka og byggði upp bæinn sinn og ég er að vona að þess verði ekki langt að bíða að Grindvíkingar, þeir sem vilja og þeir sem kjósa, geti byggt upp blómlegt bæjarlíf í Grindavík að nýju. Ég vil bara gera orð Ólafs Jóhannessonar 1973 að mínum þegar hann sagði þessi frægu orð: Vestmannaeyjar munu rísa. Ég segi: Grindavík skal rísa.