tekjustofnar sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Ég kem hér upp í aðra ræðu til að fjalla almennt um stöðuna og málefni Grindavíkur þar sem ég nýtti fyrri ræðuna til að fara yfir atriði í því nefndaráliti sem við erum að fjalla um hérna. En mig langar að gera eins og hv. formaður umhverfis- og samgöngunefndar sem flutti hér nefndarálitið, Guðbrandur Einarsson, og nýta tækifærið fyrst við fáum málefni Grindavíkur á dagskrá til að fara aðeins yfir nokkur atriði hvað það varðar. Ég vil kannski byrja á að segja það að ég hafði töluverðar væntingar til nýrrar ríkisstjórnar um málefni Grindavíkur, að ríkisstjórnin myndi standa við stóru orðin sem voru sögð fyrir kosningar og þá góðu vinnu sem margir af þingmönnum stjórnarflokkanna komu að í tíð fyrri ríkisstjórnar og sýndu samstöðu og stuðning við málefni Grindavíkur sem var mjög vel gert. Ég vil kannski byrja á að þakka fyrir það fjölmarga góða sem hefur verið gert. Hér í gegnum þingið hafa farið mörg mikilvæg mál til þess að standa á bak við samfélagið í Grindavík og bæjarfélagið og fólkið þar og atvinnureksturinn sem lendir í þessum áskorunum.
Þess skal líka getið að þetta snýst ekki bara um Grindavík og Grindvíkinga því að það er fjöldi fólks sem starfar í Grindavík enn þann dag í dag án þess að búa þar eða hafa nokkurn tímann búið þar. Það er fjöldi fyrirtækja og sérstaklega þjónustufyrirtækja sem þjónusta atvinnulífið í Grindavík, hvort sem það er í gegnum ferðaþjónustuna, sjávarútveginn, orkuöflun eða hið fjölbreytta atvinnulíf sem þar er enn þann dag í dag. Það verður að segjast eins og er að verðmætasköpunin í Grindavík fyrir þjóðina alla hefur verið mikilvæg og því er það gríðarlega mikilvægt fyrir efnahagsreikning ríkissjóðs og þjóðina alla að þeir innviðir, það samfélag og þær auðlindir sem eru í Grindavík nái fullum afköstum sem fyrst aftur. Það er gríðarlega mikilvægt og við verðum að gera allt til þess.
Við verðum líka að taka utan um það fólk sem lendir þarna í gríðarlegu áfalli og er búið að vera núna í eitt og hálft ár við slæma andlega heilsu, í þröngri stöðu og mikilli óvissu um sína framtíð, um aðstæður fjölskyldu sinnar, um fjárhagsleg málefni sín, atvinnuöryggi, framtíð barnanna sinna og margar aðrar áskoranir, félagslegar og andlegar, sem það hefur þurft að takast á við. Því varð ég fyrir miklum vonbrigðum, mjög miklum vonbrigðum með það eina sem hefur heyrst frá hæstv. ríkisstjórn um málefni Grindavíkur þegar hún tilkynnir 18. mars að eftir 12 daga, 12 dögum síðar, myndi hópurinn sem væri í hvað veikustu stöðu missa öll sértæku úrræðin sín. Það ætti eftir að koma í ljós hvaða úrræði tækju við en það væru almenn úrræði sem væri verið að vinna í að útfæra. Það væri verið að upplýsa fólkið og ætti að upplýsa fólkið. Það var algjörlega óljóst hvort það myndi falla undir úrræðin. Þetta var ótrúlegt, 12 daga fyrirvari. Af hverju segi ég fólkið í veikustu stöðunni? Jú, af því að þeir sem voru að nýta sér sértæku úrræðin enn þá voru þeir sem höfðu ekki getað nýtt sér fyrri úrræði eða hafið atvinnustarfsemi sína á ný. Þá er ég kannski að tala um fólkið sem hafði ekki tök á því eða hafði ekki getað af einhverjum orsökum keypt sér fasteign og hafið nýtt upphaf á öðrum stað, tryggt sér og fjölskyldu sinni öryggi heldur fór á leigumarkað og er enn þá fast á leigumarkaði. Mögulega var það á leigumarkaði áður en er núna komið inn í nýjan veruleika þar sem er miklu hærra fasteignaverð, miklu hærra leiguverð heldur en nokkurn tímann var í Grindavík. Þau fá 12 daga til að átta sig á því að þau fá ekki sérstakan húsnæðisstuðning. Jú, kannski fá þau húsnæðisbætur og kannski sérstakar húsnæðisbætur, þau bara vissu ekki hvort þau féllu undir það. Voru þau með lögheimili á réttum stað til þess? Hverjar eru tekjurnar, út frá hverju er miðað, frá hvaða tímabili? Allt saman í óvissu. Mörg eru með þriggja til sex mánaða uppsagnarfrest, með svimandi háa leigu sem þau hafa ekki efni á, höfðu kannski hug á að prófa að flytja aftur heim til Grindavíkur og fá að gista bara í húsinu sínu, leigja það á miklu lægra verði af Þórkötlu, gera umönnunarsamninga og sjá hvort þau treysti sér til að flytja til baka. Nei, það má ekki. Fasteignafélag ríkisins ætlar að hafa vit fyrir þeim og segja: Það má ekki. Þetta gengur ekki. Þetta er ekki fallega gert.
Fyrirtækin sem ekki geta hafið rekstur og hafa verið á rekstrarstuðningi — sum fyrirtæki eru þó að reyna að berjast í rekstri, halda fólki í vinnu, vera til staðar þegar hægt er að hefja endurbygginguna, með sértæku úrræðin, með rekstrarstuðninginn, tekjufallsstuðninginn sem hefði hentað sumum en ekki öllum. Ég hélt að það yrðu lagðar til einhverjar breytingar eða tillögur Grindavíkurnefndarinnar. Nei, það er farið. Við erum að fara að tala um sóknaráætlun Suðurnesja og hvort við getum hjálpað einhvern veginn öðruvísi. En það á alveg eftir að útfæra það.
Þetta var ekki nógu hagstætt. Þessi sértæku úrræði hefðu þurft að lifa lengur. Ég tek undir með hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni að maður skilur alveg að úrræðin þurfi að „feida“ út og það mætti þrengja að þeim og útfæra þau en fyrst það var ekki eftir alla 90 dagana þá hefði þurft að framlengja úrræði á meðan væri verið að vinna að þeim breytingum, ekki bara tilkynna þetta með 12 daga fyrirvara. Á sama tíma kom fram niðurstaða sem sýndi að andleg heilsa þeirra sem þurftu að rýma í Grindavík væri eiginlega bara í mjög slæmri stöðu og verri stöðu heldur en stjórnvöld bjuggust við, en þá er þessari óvissu bætt ofan á og fótunum og örygginu kippt undan þeim. Ég varð fyrir miklum vonbrigðum með þetta.
Ég tel að það sé mikilvægt núna og sé öllum fyrir bestu að þeim sem treysta sér til og vilja sé treyst til að taka ákvarðanir og gefið tækifæri til þess að byggja Grindavíkurbæ aftur, byggja upp atvinnustarfsemi sína, fá að flytja inn í húsnæðið sitt, gera umönnunarsamning fyrir lágt verð og gista. Ég held að það komi hagkvæmar út fyrir alla þannig að við nýtum núna strax vorið 2025 og leyfum fólkinu að meta hvort það sé ekki ásættanleg áhætta að búa og starfa í Grindavík og taka þá mið af öllum þeim góðu verkum sem almannavarnir, stjórnvöld og Grindavíkurbær og samfélag Grindavík hafa gert eins og ég fór yfir í fyrri ræðu minni áðan. Það er búið að gera gríðarlega varnir og ráðstafanir þannig að áhættan er ásættanleg til þess að byggja hraðar upp og þannig fá fleiri lausn sinna mála, þannig fær fólk tækifæri til að bjarga sér sjálft. Verkefnið sem við og stjórnvöld berum áfram ábyrgð á er að taka utan um þá sem eftir standa ef það yrði gert.
Það eru svo mörg mál sem maður þarf að fara yfir í þessu varðandi Þórkötlu, rekstrarstuðning, hver staðan er og hvernig við vinnum þetta hér í þinginu. Samráð. Fyrri stjórnvöld voru með mikið samráð milli stjórnar og stjórnarandstöðu og við þurfum að auka það og líka við heimamenn. Tíminn líður hratt þegar er verið að fjalla um stórt mál þannig að, hæstv. forseti, ég held ég þurfi kannski að koma hér í þriðju ræðu til þess að fara yfir nokkur atriði í viðbót og óska því hér með eftir að verða settur aftur á mælendaskrá.