156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

tekjustofnar sveitarfélaga.

98. mál
[16:25]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni kærlega fyrir góðar spurningar. Ég tek undir með hv. þingmanni að það er ekki eftir neinu að bíða og ég er alveg til í að gera hlé á þingstörfum ef hv. umhverfis- og samgöngunefnd vill funda í kvöldverðarhléi eða þess vegna á þingfundartíma á morgun, bara eftir því sem hentar nefndinni og vinnu hennar best til að taka utan um þetta mál. Það er alþekkt að gert sé hlé á þingfundi og boðaðir fundir í kvöldverðarhléi eða hádegisverðarhléi eða hvernig sem það er. Ég tek vel undir það.

En varðandi forræðishyggjuna vil ég taka gott dæmi um það að hana er betra að geyma bara inni í lokuðu herbergi þegar svona atburðir ganga yfir. Það sem er búið að virka gríðarlega vel í málefnum Grindavíkur er þegar fólkinu var gefið frelsi til að fara og ákveða sinn næsta samastað sjálft með því að losa um eignir þeirra í Grindavík þannig að þau gátu ákveðið hvar þau ætluðu að búa. Það var ekki bara ákveðið að kaupa hús einhvers staðar til að leigja þeim eða leyfa þeim að búa í, heldur voru þau losuð úr eigninni í Grindavík til að þau gætu tekið ákvörðun og þannig hjálpaði fólkið sér sjálft. Þetta heyrði maður svo mikið eftir eldgosið í Vestmannaeyjum og maður fann svo ríkt í okkur í Grindavík að það var alltaf verið að taka ákvarðanir einhvers staðar annars staðar en þær ekki teknar af þeim, samfélaginu sjálfu eða þeim sem voru á vettvangi. Það sem hefur farið úrskeiðis er oftast þegar ákvarðanir eru teknar einhvers staðar annars staðar og heimamenn fá ekki að vera með. Það hefur kannski reynt mest á heimamenn að fá ekki að vera með í ráðum.