156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

tekjustofnar sveitarfélaga.

98. mál
[16:27]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Suðurkjördæmis, Vilhjálmi Árnasyni, fyrir ágæta yfirferð á þessu máli og stöðu Grindvíkinga. Hér erum við að ræða framlengingu á þessu úrræði sem ég tel að flestir hljóti að vera sammála um að sé eðlilegt skref á þessum tímapunkti. Það eru hins vegar raddir sem hafa verið að benda á að það eru hópar þarna sem falla milli skips og bryggju. Hv. þm. Vilhjálmur Árnason fór líka yfir þetta í sinni ræðu og hann þekkir vel til og það er auðvitað á þessu stigi máls mikið umhugsunarefni að ekki takist betur að skapa sátt í þessum málaflokki gagnvart íbúunum sem var vísað til hérna í fyrri ræðum enda er þetta mál — þarna eru að baki í Sundhnúksgígaröðinni sjö eldgos, ef ég man rétt, og eldgosin bætast við án þess að um það skapist nein gífurleg umræða. Það er nú annað sem ég verð að vísa í í ræðu hv. þm. Vilhjálms Árnasonar, hann var að tala um það að ástandinu lýkur ekki þótt fjölmiðlar hafi þverrandi áhuga á því sem slíku. Það sem þarna hefur gerst eru meiri náttúruhamfarir í byggð en ég þekki á mínum líftíma þó að margir hv. þingmenn séu auðvitað minnugir atburðanna í Vestmannaeyjum á sínum tíma en þetta eru sannkallaðir hamfarir sem hafa riðið yfir.

Ég var niðri í háskóla á dögunum á málþingi um stöðu flóttafólks um víða veröld og þar var einstaklingur sem kom inn á það að bera stöðu Grindvíkinga saman við stöðu flóttamanna víða um veröld, sem var forvitnileg umræða. Þessi samlíking dregur líka fram á hvaða grunni við nálgumst þau mál í víðari skilningi, þ.e. flóttamannamál. Ef við segjum sem svo að Grindvíkingar séu flóttamenn rétt eins og fólk í alþjóðlega hæliskerfinu eða annað eins séu flóttamenn þá hugsar maður samt svo að á sama tíma og það verður kannski umdeildara víða um heim í hvaða mæli og með hvaða hætti við tökum á móti t.d. alþjóðlegum flóttamönnum og í verndarkerfunum — það er sannarlega umdeilt pólitískt mál víða um heim og sífellt umdeildara og skoðanir fólks á því eru sannarlega breytilegar. Ég held að margir sem hafi kannski haft skoðanir á flóttamannamálum fyrir fjórum árum eða átta árum hugsi sem svo að það sé alveg vandalaust að taka á móti stórum hópum fólks, að við höfum forsendur til þess. Síðan leiðir raunveruleikinn eitthvað annað fram þannig að þær skoðanir breytast mjög hratt.

Ef við tökum málefni eins og hamfarirnar sem hafa riðið yfir í Grindavík þá held ég sannarlega að það sé ekki neitt sem breytist frá einu ári til annars af hálfu Íslendinga að standa saman í svona málum, þegar svona neyð ríður yfir, um að þar er heildin skuldbundin til þess að hlaupa undir bagga með þeim hluta sem verður fyrir svona áfalli og það er eitthvað sem tengir okkur saman, við erum náttúrlega þjóð. Maður hefur varla orðið var við nokkra minnstu umræðu um að lýst sé verulegum efasemdum um að stjórnvöld komi að þessum málum eins og þau gera. Það er gífurlega djúp samstaða um þetta. Það sýnir okkur þessa samheldni og þann samtakamátt sem við búum yfir sem þjóð. Hann er náttúrlega alltaf í gildi og er alltaf við lýði en sérstaklega þegar svona ástand kemur upp.

Að mörgu leyti, ef maður fer aftur í Íslandssöguna, þá held ég að þetta sé líka saga fyrri kynslóða. Það kemur ýmislegt gífurlega flókið og vandasamt upp í lífinu og sannarlega eru svona stórviðburðir sem varða leiðina þegar maður rekur sig í gegnum söguna, hvort sem maður nefnir einstaka sultartímabil eða móðuharðindin eða svartadauða eða annað. Ég hef verið að blaða í áhugaverðri bók Magnúsar Sigurðssonar, sem er einn af okkar allra áhugaverðustu höfundum þessa dagana, sem heitir Glerþræðirnir. Þar er hann að tilfæra ýmis dæmi upp úr sögulegum ritum, úr annálum og öðru eins og setur það í hálfskáldlegan búning og ljóðrænan búning. Þar hef ég fengið þessa upplifun líka að þrátt fyrir að stóru augnablikin í sögunni, stóru áföllin, einmitt eins og ég nefni móðuharðindin eða annað eins, þetta sem við lærum um í sögunni, sé oft það sem við höfum til umræðu í slíkum málum er það engu að síður ákveðin samfelld neyð líka, þ.e. það var viðvarandi krísuástand sem gat myndast hér á öldum áður. Við litlar, smávægilegar veðurfarsbreytingar brást allt kerfi fólks við að afla sér fæðu og annað eins þannig að fólk var komið í miklar nauðir mjög hratt. Að sjálfsögðu er það eitt af kraftaverkum nútímans og kraftaverkum tækninnar að við búum núna við slíkar tæknilegar aðstæður að hér hafi hreinlega einmitt þegar þetta ríður yfir með Grindavík — og eins og við erum að ræða hér um að halda áfram hluta þessara úrræða þá heyrast ekki mótmælaraddir yfir því að að sjálfsögðu gerum við það sem þarf að gera til að leysa úr málum þessa fólks. Það í grunninn — á meðan á öldum áður höfðu menn einfaldlega engin úrræði til þess, gætu það ekki ef þeir vildu það, þeir þurftu bara að sjá um sig en það er manninum í blóð borið að hjálpa náunganum og að hafa tæknilegar forsendur til þess að auki, það skapar þetta nútímasamfélag sem við eigum, það er grunnurinn að því öllu saman, þetta hugarfar og svo þessar tæknilegu forsendur.

Það er auðvitað bara hagsæld, velferð, forsendur í ríkissjóði, maður getur líka komið inn á það, það er líka eitthvað sem við verðum alltaf að hafa í huga, sérstaklega af því að við höfum verið að ræða fjármálaáætlun hérna og menn hafa verið að benda á ýmislegt sem mætti betur fara í því hvernig stjórnvöld halda eins vel og hægt er utan um stöðu ríkissjóðs. Á þessum ólgutímum í veröldinni er mikið hagsmunamál, mikið öryggismál, talandi um öryggismál í þessu sambandi, að vera ekki að taka allt of mikil lán til að reka okkur, þ.e. að horfast þá frekar í augu við þetta. Að sjálfsögðu ver ríkissjóður fjármagni í fjárfestingar. Það er bara þannig. Það eru hagsmunir ríkissjóðs. En hitt er síðan þessi rekstur og þessi rekstrarkostnaður sem er of mikill, vaxtakostnaður er of mikill, það fer of mikill peningur í stóru kerfin okkar og það þarf að leita allra mögulegra leiða til að einmitt stemma stigu við því vegna þess að það er öryggismál allra landsmanna. Það þýðir ekki að afgreiða slíka umræðu sem einhvers konar hægri eða vinstri umræðu að mínu mati. Ég held að það sé einmitt bara öryggismál að ríkissjóður standi þannig, sérstaklega á þessum síðustu og verstu tímum þegar við vitum ekki hvað framtíðin ber í skauti sér, t.d. í sambandi við almannavarnaástandið á Reykjanesskaga. Þar liggur fyrir í öllum athugunum að við höfum hreinlega ekki minnstu hugmynd um það hversu lengi þetta ástand varir. Þessar aðstæður hafa komið upp áður í sögunni, þá hafa þær verið ár og áratugi, jafnvel einhver hundruð ára í gangi, eins og manni skilst af vísindamönnum, þannig að það hreinlega veit bókstaflega enginn hversu lengi þetta getur staðið yfir. Það er auðvitað bara glæný staða í ríkisfjármálunum að vera með þennan gífurlega stóra óvissuþátt. Ekki það að líklega stóra fjárhagslega höggið gagnvart ríkissjóði, ef maður lýsir því þannig, sé ekki þegar komið fram, það er það, en engu að síður er ýmis umsýsla, ýmsar stórar ákvarðanir sem þarf að taka. Það þarf að senda íbúum skilaboð um það hvernig þeim beri að líta á þessi mál, hvernig þeim beri að hugsa til framtíðar. Þetta eru stóru spurningarnar. Við erum með einstaka mál eins og þessi sem eru bara ágæt, að halda að sjálfsögðu áfram þessum eðlilegu skrefum í tengslum við fasteignagjöldin.

Það er augljóslega nauðsynlegt á þessu stigi að halda því óbreyttu en síðan eru óvissuþættir í þessu máli, eins og kom fram í margt forvitnilegri samantekt framkvæmdanefndar sem fór yfir stöðuna þarna í víðum skilningi. Þar er því einmitt slegið fullum fetum fram að við verðum að átta okkur á því að þessum atburði er ekki lokið. Hann gæti þess vegna allt eins verið í stóra samhenginu rétt að hefjast á meðan kannski tilfinningin okkar af fjölmiðlaumfjöllun og öðru eins sé að þessu sé lokið. Þess vegna er mjög mikilvægt að stjórnvöld á þessum ólgutímum hafi hugann við þetta og hlusti á, eins og hv. þm. Vilhjálmur Árnason greindi hérna frá, þessar raddir sem eru að segja: Heyrðu, hérna eru þessir og þessir aðilar að falla milli skips og bryggju. Fólk er ekki að biðja um einhverja ölmusu eða annað eins heldur bara skilning á margvíslegum aðstæðum. Það skiptir máli að við förum inn í þessa vegferð sem á mögulega eftir að teygja sig um einhver ókomin ár og byrjum þetta rétt, eins og þetta fór nú vel af stað.

Í skýrslu framkvæmdanefndar kemur fram, og þetta liggur svo sem fyrir og blasir við, að það er óljóst hvenær eða hvort Grindavík er tæk til uppbyggingar búsetu og samfélagssmíði þar sem myndu búa bæði fullorðnir og börn. Þetta þýðir að það hefur enginn vissu um það hvað framtíðin ber í skauti sér á þessum stað og í millitíðinni er fólk náttúrlega á ýmsum stöðum. Eins og hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson lýsti hér þá kemur náttúrlega sá tímapunktur þar sem fólk fer að mynda sér afstöðu hægt og rólega og í raun og veru ákveða að það sé með einhverjum hætti búið að festa rætur annars staðar. Sá tímapunktur kemur sannarlega en hann er ekkert kominn hjá öllum. Margir vilja enn þá halda hlutum opnum og það er eiginlega ekki hægt að ákveða þetta fyrir fólk á þessu stigi máls. Það er kannski líka það sem fólk er að benda á í þessari umræðu.

Ég held, ef við drögum þetta saman, að það sé mikilvægt að halda í þessa samstöðu sem ég kom inn á í upphafi sem við höfum fundið fyrir meðal landsmanna um að halda einfaldlega vel á þessum málum, að gefa engan afslátt af því að taka utan um þennan hóp, og þar með getum við gengið frá þessu máli einmitt þegar við skoðum það í baksýnisspeglinum með góða tilfinningu, að þarna hafi verið staðið vel að málum. Í því sambandi verð ég að segja að þetta frumvarp sem hérna er fyrirliggjandi og þessi umræða er ágætt innlegg en eins og bent hefur verið á hérna í pontu í dag þá er margt annað sem þarf að skoða.