156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

tekjustofnar sveitarfélaga.

98. mál
[16:39]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Já, málefni Grindavíkur eru hér til umræðu og þegar maður hugsar um þessi mál og þessar jarðhræringar og uppákomur sem hafa átt sér stað undanfarið eitt og hálft ár — það er ekki einu sinni komið eitt og hálft ár síðan þetta hófst, ekki einu sinni komið eitt og hálft ár síðan fólk þurfti að rýma bæinn, heilu fjölskyldurnar flúðu heimili sín — þá finnur maður hvað tíminn er afstæður. Maður man það eins og gerst hefði í gær þegar þetta kom upp, sjálf takandi á móti ungum foreldrum á þrítugsaldri með þrjú lítil börn og angistin og sorgin í augunum ólýsanleg. Maður gleymir ekki þessum augnablikum en engu að síður á þessum tíma, það er tæplega eitt og hálft ár, þá er með ólíkindum í rauninni hvað er búið að gerast og hvað við erum búnir að læra, þvílíka reynslan sem af þessu hefur hlotist.

Ég vil taka undir það að viðbrögð þáverandi ríkisstjórnar, almannavarna, bæjaryfirvalda í Grindavík á þessum tíma voru með ólíkindum, hafandi sjálf verið á þessum tíma framkvæmdastjóri í nágrannasveitarfélaginu og verandi í miklum samskiptum við bæjaryfirvöld í Grindavík á þessum tíma, þá ef maður hugsar um það, þetta var í rauninni ómannlegt, hvað menn komust yfir að gera, allir, bæjarfulltrúar og tala nú ekki um íbúana og alla, allir í áfalli og eru örugglega eins og hér hefur komið fram ekki enn búnir að jafna sig á því allir hverjir. En það sem náðist að gera og það þrekvirki sem unnið var er með hreinum ólíkindum. Þarna var eitt blómlegasta sveitarfélag landsins, það bara hverfur nánast, ef svo má segja, þarna í einu vetfangi. Þetta er sveitarfélag sem var til algjörrar fyrirmyndar í samfélagi sveitarfélaga í landinu, líklega það best rekna, nánast skuldlaust, þarna var þvílíkt blómlegt atvinnulíf og dásamlegt að búa.

En hvernig bæjarstjórn — ég vil bara fá að nota þetta tækifæri, því eðli málsins samkvæmt hef ég ekki rætt málefni Grindavíkur úr þessum ræðustóli en mig langar að nota þetta tækifæri og bara þakka enn einu sinni fyrir, eins og margir hafa komið á framfæri á þessum tíma, þessi fumlausu viðbrögð og viðbrögð eins og bæjaryfirvöld sýndu á þessum tímapunkti þegar allt samfélagið var í áfalli, og þeir sjálfir líka, hvernig hægt væri að koma málum fyrir, koma börnunum fyrir í skólum annars staðar, koma fötluðum fyrir í þeim úrræðum sem þeim bar, öldruðum og þar fram eftir götunum. Þetta er einhver reynsla, hafandi horft á þetta utan frá en að einhverju leyti pínulítið að reyna að hjálpa og aðstoða nágranna þarna í þessu ástandi, þá er þetta eitthvað sem fer ekki frá manni, og horfandi upp á litlu fjölskylduna á þrítugsaldri með þrjú litlu börnin þurfa að koma sér fyrir í öðru sveitarfélagi og byggja upp nýtt líf, það er líka eitthvað sem er ólýsanlegt og mörg ykkar og margir hafa sögur af, fólk sem hafði alist upp og átt allt sitt bakland í þessu góða samfélagi. Því skilur maður að þeim sem vilja halda samfélaginu áfram, vilja sjá til framtíðar að þarna verði hægt að byggja upp og halda áfram, finnist að það sitji ekki allir við sama borð, eins og þeir sem eru að reka fyrirtækin. Það er náttúrlega ótrúlegt að hlusta á það eins og hér hafa verið tekin dæmi um að gistiheimili á móti hvort öðru, bara eftir því hvar þau lenda innan þessara skemmda sem þarna hafa orðið þá sitji þau við þvílíkt ólíkt borð eins og hér hefur verið lýst. Að mínu mati þá þarf að opna allt þarna eða koma sérstaklega til móts við þessi fyrirtæki. Það er bara um það að velja.

Hér hefur verið lýst í löngu máli og svo réttilega hvers konar samstaða og samhugur einkenndi Íslendinga alla þegar þetta kom upp fyrir tæpu einu og hálfu ári. Það er ótrúlegt að það sé ekki lengra síðan. Ég held og veit að sú samstaða og samhugur er enn fyrir hendi. Við getum öll reynt að setja okkur í þessi spor. Við vitum aldrei hvar svona hluti ber næst niður og þarna er fólk sem er að berjast fyrir sínum tilverurétti, berjast fyrir tilverurétti fyrirtækja sinna og samfélagsins og fjölskyldnanna og þau á að hafa með í ráðum þegar framtíðin er ákveðin. Þau skynja best og vita best hvernig best er að haga málum, þannig að gerum það. Þetta er eitt skref sem þetta frumvarp fjallar um sem verið er að taka hérna í dag. Gott og vel, en það þarf ákveðnari ákvarðanir til framtíðar. Ég held að ég tali fyrir munn mjög margra landsmanna að við eigum að gera allt hvað við getum fyrir Grindvíkinga. Ég held að þetta sé bara svo einfalt og látum þá um að aðstoða við að finna leiðirnar.

Mörg ykkar sem hér eru í þessum þingsal eða eru að hlusta á þessa útsendingu hafa kannski komið þarna inn. Ég varð þess heiðurs aðnjótandi að fá fyrir nokkrum mánuðum að koma inn í Grindavík undir leiðsögn bæjarstjórans og almannavarna og hitta allt þetta fólk sem vann allt þetta þrekvirki og stóð í þessu sólarhringum saman og gerir enn, leggur líf sitt og sálu í að bregðast við og byggja upp, fyrst og fremst að tryggja öryggi en núna er algjörlega tilbúið að byggja upp þetta góða samfélag. Það er þvílíkur mannauður og þvílík reynsla sem við eigum í þessum hópi fólks, almannavörnum og öðrum sem komu þarna. Ég get tekið undir það sem kom fram í máli hv. þm. Sigurðar Inga Jóhannssonar að við eigum líka að horfa til þess að það þarf jafnvel að huga að þessum sálrænu þáttum. Þetta er áfall sem leysist ekkert bara með tímanum, alla vega ekki hjá öllum og við erum eins misjöfn og við erum mörg í þeim efnum. Það er líka hlutur sem hið opinbera og við eigum, sem sagt ríkið, að huga að í framtíðarútfærslu í Grindavík og fyrir þetta fólk.

Fyrst og fremst er algerlega aðdáunarvert hvernig fólk hefur brugðist við, hvar sem það hefur verið statt í þessu og það er algerlega aðdáunarvert að finna eldmóðinn í þeim sem vilja halda áfram. Ég bara legg á það ofuráherslu: Vinnum að því að fá það fólk til liðs við okkur til þess að byggja upp framtíðina í Grindavík og ég tek undir það sem hér hefur komið fram í máli einhverra, og flestra held ég, að því fyrr því betra að taka slíkar ákvarðanir. Mér fannst það líka mjög gott sem kom hérna fram, vitna aftur í hv. þm. Sigurð Inga Jóhannsson, að fólkið þarna bíður eftir því að fá að gera eitthvað núna í sumar og fá að undirbúa sumarið. Það bíður eftir því. Eftir því sem tíminn líður — við erum að tala um eitthvað, eins og ég var að segja hérna, sem gerðist fyrir tæpu einu og hálfu ári, og það sem er búið að ganga á. Þessu fólki finnst eitt og hálft ár í viðbót vera — í mínum huga myndi ég halda að það væri bara eins og heil eilífð. Látum hlutina gerast, fáum fólk til liðs við það verkefni að byggja upp framtíð Grindavíkur og því fyrr því betra, vil ég segja.