156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

tekjustofnar sveitarfélaga.

98. mál
[16:58]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir þessa þörfu umræðu sem hér á sér stað. Þó að málið láti nú svo sem ekki mikið yfir sér er þetta þarft og gott málefni og miklar þakkir til framsögumanns á málinu, hv. þm. Guðbrands Einarssonar. Það er merkilegt, virðulegur forseti, að þetta er í fyrsta skipti sem ég tek til máls um málefni Grindavíkur í þessum sal og ágætt að það komi fram. En það hefur verið á þessu þingi og sömuleiðis sérstaklega á síðasta kjörtímabili ánægjulegt að fá að fylgjast með þeim eldmóði sem er í t.d. hv. framsögumanni, Guðbrandi Einarssyni, fyrir hönd Grindavíkur og sömuleiðis öðrum þingmönnum í Suðurkjördæmi sem hafa talað máli Grindavíkur. Það hefur ýmislegt verið gert og núna virðist það vera þannig að þrátt fyrir allt og allar þær hremmingar sem samfélagið í Grindavík hefur gengið í gegnum þá sé alveg gríðarlegur hugur í heimamönnum.

Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi fyrir nokkrum vikum síðan að heimsækja Grindavík. Það var í fyrsta skipti sem ég kom þangað eftir að þessar hamfarir byrjuðu, hafði að vísu nokkrum sinnum komið þangað áður, og fá að upplifa þetta með því að vera þarna á staðnum, vissulega séð myndir og heyrt fólk tala en það er ekki það sama, menn þurfa að fara á staðinn, þurfa að hitta fólk, heimamenn í Grindavík, og það er bara allt önnur tilfinning sem menn fá fyrir því, maður skynjar betur hvernig einstaklingum líður og hvað þeir eru að takast á við.

Það sem held ég að sé öllum hollt, virðulegur forseti, er að fá sér kaffi með Pétri og Páli, þeim bræðrum í Vísi, og finna þann baráttuhug sem þar er, sem er alltaf ánægjulegt þegar menn koma á öfluga vinnustaði eins og Vísir er. Vissulega eru miklar áskoranir sem þessu fylgja, þ.e. að stunda þarna atvinnu og vinna verðmæti úr þeim fiski sem dreginn er að landi því að náttúran hefur svo sem ekki farið neitt sérstaklega blíðum höndum um Grindavík.

Virðulegur forseti. Það sem ég vildi leggja einna mesta áherslu á í minni ræðu eru þessar hugmyndir Grindvíkinga sem snúa að því að fá að snúa aftur og fá að byrja að prófa að vera aftur á staðnum, prófa að vera þarna í sumar og finna það bara á sjálfum sér, eins og Pétur lýsti þessu svo vel fyrir okkur, bara hvort þú leggir í að vera á staðnum. Það er ákveðið skref og mér finnst mjög mikilvægt í þessu samhengi að örugglega er fjöldi einstaklinga sem hefur áhuga á því en við vitum það ekki fyrr en þessi leið stendur til boða. Ég held að það sé bara hvatning fyrir okkur öll og sömuleiðis þá til ríkisstjórnarinnar og almannavarna að reyna að taka þessi skref með heimamönnum, því að ég met það á bara samtali mínu við heimamenn að þá sé það nú þannig að hugur þeirra standi til þess að byggja upp Grindavík að nýju. Það eru sum svæði sem held ég að séu svo sem ágætlega til þess fallin en vissulega held ég að þurfi að gera ansi mikið á öðrum svæðum.

Aðlögunarhæfni mannsins við það að takast á við breyttar aðstæður er nú sömuleiðis ansi mikil. Við þekkjum það í gegnum söguna að við höfum tekist á við alls konar áskoranir sem þjóð og þetta er bara ein af þeim og ég held að það sé alveg óhætt að segja það, virðulegur forseti, að þjóðin stendur og hefur staðið með Grindavík í gegnum þessar hremmingar allar. Hvenær er endapunkturinn? Við vitum það ekki. Vonandi styttist nú í hann. Það er nú venjulega þannig að þessi eldsumbrot hljóta að hætta einhvern tímann. Ég sé ekki annað fyrir mér en að Grindavík verði sá öflugi útgerðarbær, iðnaðarbær sömuleiðis — þarna hefur gríðarlega öflug starfsemi verið rekin í gegnum tíðina og vissulega er sjávarútvegurinn undirstaða þess sem þar hefur verið. Hv. þm. Halla Hrund Logadóttir kom inn á það í sinni ræðu sem snýr að æskulýðs- og íþróttastarfi en allt þarf þetta held ég að vera tekið í frekar litlum og öruggum skrefum. Það fannst mér vera það inntak sem títtnefndur Pétur í Vísi ræddi nú töluvert mikið um, þ.e. tökum skrefin rólega, þróum okkur áfram.

Síðan er það náttúrlega úrlausnarefni sem snýr þá að Þórkötlu varðandi það að leigja húsin eða hvernig sem það er nú farið í, ég lít á það sem bara verkefni, úrlausnarefni sem getur ekki annað verið en að sé tiltölulega þægilegt að leysa. Það eru gríðarleg verðmæti fólgin í þessum húseignum sem þarna eru. Vissulega eru þær á hendi Þórkötlu en við þurfum að passa upp á þessi verðmæti líka og það er örugglega enginn betur til þess fallinn að passa upp á þau verðmæti sem þarna eru heldur en heimamenn og þeir sem hafa verið í þessum húsum áður og það er þá mikilvægt að þessi skref verði stigin.

Mér finnst, virðulegur forseti, að það hafi orðið svolítið bakslag í þeirri þróun sem var komin á gott ról varðandi þá Grindavíkurnefnd sem var að störfum varðandi það þegar urðu þarna ákveðin mannaskipti. Það voru þarna mjög öflugir og reyndir einstaklingar sem voru í þessari nefnd og tveir þeirra eru farnir í dag. En það verður alltaf þannig og ég hef trú á því að þeir einstaklingar sem tóku við af þeim komi til með að ná þeim þræði sem hafði myndast í samskiptum Grindavíkurnefndarinnar og forsvarsmanna sveitarfélagsins en það tekur alltaf tíma og tefur nú yfirleitt þá framþróun sem þarna er því þetta snýst meira og minna um traust og mannleg samskipti á milli einstaklinga, einstaklinga sem eru í forsvari, þeirra einstaklinga sem eru þarna með atvinnulífið á sinni könnu og þeirra einstaklinga sem vilja snúa til baka.

Áður en ég hætti, virðulegi forseti, og lýk þessari ræðu minni hér þá vil ég bara hvetja hæstv. ríkisstjórn til þess að fara nú í það af fullum krafti að horfa til þess að Grindvíkingar geti snúið aftur, þeir sem það vilja, opna á þessa tilraun sem þeir hafa verið að nefna varðandi það að fólk geti komið til baka og fengið að prófa að búa þarna. Það eru þó nokkrir einstaklingar sem búa á ákveðnum svæðum bæjarins í dag þannig að það er verkefnið. Verkefnið fram undan er að takast á við náttúruöflin af þeirri virðingu sem hægt er í því og standa á bak við Grindvíkinga og hjálpa þeim sem vilja snúa til baka með öllum þeim ráðum sem við höfum tiltæk hvað það varðar. En ég ítreka það, virðulegur forseti, að það er fyrst og fremst lykilatriði að mannleg samskipti séu hreinskiptin og það sé hlustað af nærgætni og síðan sé gengið í það, virðulegi forseti, að koma þeim til hjálpar sem þess óska.